Innlent

Víðir settur í sóttkví

Birgir Olgeirsson skrifar
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Vísir/Vilhelm

„Ég var í samskiptum við einstakling í vikunni sem var talinn vera mjög smitandi þann dag sem ég hitti viðkomandi. Þar af leiðandi var ég settur í sóttkví samkvæmt þeim reglum sem við vinnum eftir,“ segir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn ríkislögreglustjóra.

Hann verður því ekki á upplýsingafundi almannavarna klukkan tvö í dag. Í stað hans mætir Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri sem mun fara yfir stöðuna ásamt Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×