Sara Rún best er Leicester vann bikarinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. mars 2020 17:30 Sara Rún og liðsfélagar fagna að leik loknum. Vísir/WBBL Official
Sara Rún Hinriksdóttir fór á kostum í úrslitaleik breska körfuboltans í dag. Var hún valin besti leikmaður vallarins er Leicester Riders lagði Durham Palatinates með fjögurra stiga mun, 70-66. Þetta er þriðja leiktíðin í röð þar sem Leicester Riders fagnar sigri í bikarkeppninni. Leikurinn var í járnum frá upphafi til enda en Sara Rún og stöllur hennar voru þó alltaf hálfu skrefi á undan. Þeim gekk hins vegar illa að stinga seigt lið Durham Palatinates af. Í hálfleik munaði sex stigum á liðunum, staðan þá 38-32 Leicester í vil. Í síðari hálfleik tókst Durham að minnka muninn niður í fjögur stig en ekki söguna meir og Leicester því bikarmeistari árið 2020. Lokatölur 70-66. Keflvíkingurinn gerði sér lítið fyrir og var stigahæst á vellinum með 23 stig, þá tók hún sjö fráköst og gaf eina stoðsendingu. Var hún að leik loknum valin besti leikmaður leiksins. The moment... MVP, MVP, MVP @kkikarfa star Sara Hinriksdottir and @RidersWomen celebrating their THIRD Betty Codona WBBL Trophy in a row.#BritishBasketball pic.twitter.com/9DVgX0kfx8— WBBL (@WBBLofficial) March 15, 2020
Körfubolti Mest lesið Leik lokið: Stjarnan - Fram 25-31 | Fram bikarmeistari Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 20-25 | Haukar bikarmeistarar í fyrsta sinn í átján ár Handbolti „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Fótbolti „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Enski boltinn Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti Fleiri fréttir Leik lokið: Hamar/Þór - Tindastóll 77-72 | Mikilvægur sigur heimaliðsins Embiid frá út leiktíðina „Óafsakanlegt hvernig við mættum til leiks“ „Tilefnið stórt og sterkt að landa sigri“ „Ákveðnir í því að gefa þeim enga von“ „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Mikilvægur sigur Þórs í háspennuleik Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 103-81 | Hafnfirðingnar fallnir Uppgjörið: Grindavík - Keflavík 101-91 | Gula dreymir um heimavallarrétt Auglýsa leik kvöldsins með minnsta skilti sem fyrirfinnst Þjálfarinn skammaði Edwards eftir sextándu tæknivilluna í vetur „Staðan er erfið og flókin“ Tryggvi þarf að taka sig á í skólanum Tvær tillögur um að fjölga karlaleikjum Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi GAZ-leikur kvöldsins: „Leiðinlegt ef þeir halda að þeir séu komnir með þetta“ Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ „Ég elska að vera á Íslandi“ Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Sjá meira
Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli