Útgjöld ríkis vegna lengingar fæðingarorlofs aukast um 1,8 milljarða Atli Ísleifsson skrifar 1. október 2020 10:38 Í frumvarpinu er einnig kveðið á um barnabætur, útgjöldin vegna þess málaflokks haldast óbreytt frá fjárlögum þessa árs. Vísir/Vilhelm
Útgjöld ríkisins vegna lengingar fæðingarorlofs úr 10 mánuðum í 12 munu aukast um 1,9 milljarða á ári. Alls mun kostnaður ríkissjóðs vegna fæðingarorlofs þar með nema um 19 milljörðum á árinu. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í morgun. Ákvörðunin um lengingu fæðingarorlofs var liður í aðgerðum ríkisstjórnar til að greiða fyrir Lífskjarasamningnum. Seinni hluti lengingarinnar kemur til framkvæmda á árinu 2021 og felur hún, ein og sér, í sér 1,9 milljaða króna útgjaldaaukningu. Alls er hins vegar gert ráð fyrir að heildarútgjaldaáhrif vegna lengingarinnar nemi 3,8 milljörðum króna. Aukninguna má einnig rekja til hækkunar á hámarksgreiðslum í 600.000 kr. á mánuði sem tók gildi á árinu 2019. Í frumvarpinu segir að alls hafi útgjöld ríkisins vegna fæðingarorlofs þá aukist um tæp 70 prósent frá árinu 2017 að raunvirði. „Aukninguna má einnig rekja til hækkunar á hámarksgreiðslum í 600.000 kr. á mánuði sem tók gildi á árinu 2019. Eru þessar aðgerðir liður í því að efla stuðning við börn og barnafjölskyldur sem er eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar,“ segir í frumvarpinu. Í frumvarpinu er einnig kveðið á um barnabætur, en heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2021 er áætluð 13,1 milljarður króna og er óbreytt frá fjárlögum þessa árs. Allt það helsta um fjárlagafrumvarpið 2021 má finna í Vaktinni á Vísi.
Fjárlagafrumvarp 2021 Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Fæðingarorlof Börn og uppeldi Mest lesið Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Vefmyndavél Vísis á Reykjanesskaganum Innlent Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni Innlent Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Innlent Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Innlent Samþykki annarra verði ekki lengur skilyrði fyrir hunda- og kattahaldi Innlent Fleiri fréttir „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Samþykki annarra verði ekki lengur skilyrði fyrir hunda- og kattahaldi Tók upp hníf eftir útistöður við mann á hóteli Síður með ofbeldi barna spretti upp eins og gorkúlur Orkuveitan vill reisa fimmtán vindmyllur Nemendur Vallaskóla í þremur fyrstu sætunum í Stóru upplestrarkeppninni Ætla að bæta þjónustu en störfum fækki í einhverjum tilvikum Nýtt gervigreindaræði vekur upp spurningar um höfundarrétt Taka fyrir afnám réttinda grásleppusjómanna Sjá meira