Innlent

61 greindist og 39 ekki í sóttkví

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá skimun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut.
Frá skimun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut. Vísir/Vilhelm

61 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 22 þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, 39 ekki. Þrettán eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Tveir voru lagðir inn og tveir útskrifaðir síðasta sólarhringinn.

Ekki verður boðað til upplýsingafundar í dag.

Nýjustu tölfræðiupplýsingarnarnar koma fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is.

652 manns eru nú í einangrun, samanborið við 605 í gær. Þá eru 1.608 í sóttkví í dag, samanborið við 1.845 í gær.

Af þeim 61 sem greindust innanlands í gær greindust 55 eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni og fimm við sóttkvíar- og handahófsskimun. Einn greindist í skimun Íslenskrar erfðagreiningar.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 145,9 en var 149,7 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 7,1 líkt og í gær.

Nú hafa 2.872 manns greinst smitaðir af kórónuveiru á Íslandi frá upphafi faraldursins. Tíu þeirra sem hafa veikst af Covid-19 eru látnir.


Tengdar fréttir

37 greindust innan­­lands og þrír nú á gjör­gæslu

37 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Ellefu þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, 26 ekki. Alls eru þrettán nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×