Innlent

Brunaútkall í Sorpu beint eftir brunann á Skemmuvegi

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Eldur kom upp í pressugámi á endurvinnslustöð Sorpu úti á Granda í dag.
Eldur kom upp í pressugámi á endurvinnslustöð Sorpu úti á Granda í dag. Vísir/Atli

Eldur kom upp í pressugámi á endurvinnslustöð Sorpu á Granda. Dælubíll og teymi frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, sem nýverið hafði lokið störfum á vettvangi bruna við Skemmuveg í Kópavogi, hefur verið sent á vettvang og stendur slökkvistarf yfir.

Vísir/Atli

Nokkuð álag hefur verið hjá slökkviliðinu í dag en fyrir utan brunaútköll hefur slökkviliðið sinnt um 40 sjúkraflutningum það sem af er degi. Allt tiltækt lið var kallað að vettvangi brunans á Skemmuvegi en er slökkvistarfi þar nú að mestu lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×