Innlent

Grunn­at­riðin sem Þór­ólfur vill að allir hafi í huga

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að mikilvægt sé að landsmenn allir hafi það í huga hvernig kórónuveiran smitist á milli manna og hvernig best sé að sporna við hverri dreifileið. Það sé mikilvægara en að hugsa stöðugt um hvaða athafnir séu leyfðar og hverjar ekki leyfðar samkvæmt reglugerðum.

Fjöldi smita hefur vaxið undanfarna daga en í gær greindust níutíu og fjórir með kórónuveiruna innanlands í gær. Nú eru 4.345 í sóttkví og fjölgar um þrjú hundruð á milli daga. Þá eru 846 á landinu öllu í einangrun með veiruna.

Á daglegum upplýsingafundi sagði Þórólfur þetta vera áhyggjuefni. Sambærilegar eða hærri tölur næstu daga myndu skila sér í fleiri innlögnum á spítala, sem gæti leitt til þess að álag á spítölum gæti aukist mjög. Á fundinum fór Þórólfur því yfir nokkur grunnatriði sem hann sagði alla landsmenn þurfa að hafa í huga.

„Við þurfum enn og aftur að minnast á það og ítreka það hvernig þessi veira smitast á milli. Það er það sem allir þurfa að hugsa um og hafa í huga. Veiran hún smitast á milli einstaklinga með dropasmiti, snertismiti eða úðasmiti,“ sagði Þórólfur áður en hann útskýrði hverja og eina smitleið, líkt og sjá má í myndbandinu hér að neðan.

„Til þess að forðast dropasmit þurfum við að forðast nánd við aðra, sérstaklega veika einstaklinga, sem mest. Þá þurfum við að hafa í huga þessa nándarreglu, einn til tveir metrar. Hér geta andlitsgrímur hjálpað í ákveðnum aðstæðum eins og við höfum talað um. Einnig þurfa ákveðnir aðilar að hafa í huga hvernig þeir hnerra og hvernig þeir hósta til að vernda aðra aðila sem mest.

Snertismit, það þarf að muna að þvo og spritta hendur, hreinsa sameiginlega snertifleti og í vissum aðstæðum að nota hanska.

Nú úðasmit, að forðast illa loftræsta staði og nota grímur eins og við höfum talað um áður.“

Þarf ekki marga til að koma af stað faraldri

Mikilvægt væri að hafa þessi atriði í huga, í stað þess að hugsa stöðugt um hvað mætti og hvað mætti ekki. Þetta segði hann þar sem nokkuð hafi borið á því einstaklingar hafi verið að leita sér leiða til að komast hjá því að taka þátt í ýmsum aðgerðum.

Yfirvöldum hafi til að mynda borist til eyrna að verið væri að færa líkamsrækt innan úr húsum og út til þess að fara eftir reglugerð um sóttvarnir. Einnig hafi einhverjir verið að skilgreina sína starfsemi á annan hátt þannig að reglugerðin nái ekki yfir það.

„Þetta er mjög leitt að heyra og þetta mun ekki hjálpa okkur í baráttunni gegn veirunni. Ég bið alla um að hafa þessi grunnprinnsupp í heðri og hafa þau í huga þannig að við getum lágmarkað alla smithættu á milli einstaklinga.“

Ítrekaði Þórólfur þó að flestir færu eftir þessum grunnatriðum sem hann nefndi.

„Það getur verið nóg að það séu fáir sem eru að gera það ekki og þá getum við sett af stað faraldur. Ég vil þakka þeim sérstaklega sem hafa farið eftir þessum grunnprinnsippum skýrt og skilmerkilega.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×