Lúlla dúkka nú viðurkennd sem nauðsynjavara Rakel Sveinsdóttir skrifar 12. október 2020 07:03 Eyrún Eggertsdóttir framkvæmdastjóri Róró og Lúlla dúkka. Vísir/Vilhelm „
Við höfum frá upphafi selt um hundrað og sextíu þúsund dúkkur, það er mismunandi eftir árum hve mikið. Þetta ár hefur verið nokkuð erfitt ár fyrir okkur og Covid ástand spilaði þar stórt hlutverk,“ segir Eyrún Eggertsdóttir stofnandi og einn eigandi Róró sem framleiðir Lúllu dúkku. „Á sumum okkar stærstu mörkuðum hafa allar búðir lokast og aðeins leyft að selja það sem er viðurkennt sem nauðsynjavara í netsölu,“ segir Eyrún og bætir við: „Okkur til mikillar ánægju fengum við þó á endanum Lúllu viðurkennda sem nauðsynjavöru vegna þess að hún hjálpar börnum með kvíða og svefnvanda og það er auðvitað alveg nauðsynlegt.“ Róró, framleiðandi Lúllu dúkku, er eitt þeirra fjölmargra fyrirtækja sem varð til í síðustu kreppu, þ.e. eftir bankahrun. Róró var stofnað árið 2011 en það árið vann hugmyndin að Lúllu dúkkunni Gulleggið. Lúlla fór strax í útrás Hönnun Lúllu dúkku byggir á rannsóknum sem sýna að nærvera foreldris bætir svefn, vellíðan og öryggi nýfæddra barna. Þróunartímabil dúkkunnar stóð yfir í þrjú ár en hún líkir eftir nærveru foreldris með því að spila upptöku af hjartslætti móðurinnar í slökun. Lúlla dúkka hjálpar þannig börnum að sofa þegar nærvera foreldris er ekki möguleg. Þegar hönnun dúkkunnar lauk var farið í hópfjármögnun sem tryggði að framleiðslan fór af stað árið 2014. Árið 2015 fór dúkkan síðan í sölu og dreifingu. En strax frá upphafi var vitað að Ísland væri of lítill markaður fyrir Lúllu dúkku. Núna eru stærstu sölusvæði dúkkunnar Ástralía, Nýja Sjáland og Bandaríkin. Á ensku heitir Lúlla dúkka Lulla doll. Við seljum nær eingöngu í vefsölu á Bandaríkjamarkaði og þá bæði á Amazon og okkar vefsölu. Á öðrum svæðum í heiminum seljum við mun meira til dreifingaraðila og í búðir og er það í heildina litið stærra hlutfall af seldum dúkkum,“ segir Eyrún. Við hönnun Lúllu dúkku var meðal annars horft sérstaklega til fyrirbura og ungbarna á spítölum. Lúlla fer á spítala Að sögn Eyrúnar getur það skipt máli að söluaðili sé í nálægð við sinn markað. ,,Þess vegna ákváðum við að selja einnig áfram til dreifingaraðila sem að sjá um sína markaði og geta farið á sýningar og átt í samskiptum við búðir og viðskiptavini,“ segir Eyrún. En hvert er lykilatriðið við markaðsetningu á vöru fyrir erlendan markað? „Lykilatriði fyrir markaðssetningu held ég að geti verið þau sömu á öllum mörkuðum. Vera áhugaverður og lifandi í markaðssetningu. Reyna að koma sögunni sinni og vörunni á framfæri í sem stærstum miðlum sem ná til sem flestra,“ segir Eyrún og bætir við: „Prófa sig áfram og velja fleiri en eina leið.“ Lúlla dúkka er framleidd í Kína. Að sögn Eyrúnar er Róró nú með marga nýja dreifingaraðila bæði í Asíu og í Evrópu. Hjá Róró starfa fimm manns í fullu starfi og eru starfsmenn allir staðsettir á Íslandi. Í lokin spurðum við Eyrúnu hvar hún sæi fyrir sér Róró og Lúllu dúkku eftir 3-5 ár. „Ég vona að Lulla doll haldi áfram að komast í hendurnar á börnum út um allan heim og hjálpi þeim með líðan og svefn. Við erum að koma með nýjar vörur í næsta mánuði til að ná til enn breiðari aldurshóps og ég er mjög spennt fyrir því. Sérstaklega er ég spennt fyrir vörunni fyrir minnstu veiku börnin sem við hönnuðum til að fá frekar leyfi inná spítala,“ segir Eyrún.
Verslun Nýsköpun Heilsa Börn og uppeldi Tengdar fréttir Endurvinna 85% af bifreiðum með því að endurnýta varahluti og selja Aðalheiður Jacobsen eigandi Netparta segir fyrirtæki ekki munu lifa af samkeppni framtíðarinnar ef þau eru ekki umhverfisvæn og samfélagslega ábyrg. Hún segir umhverfisvæna starfssemi einnig fela í sér efnahagslegan ávinning. 5. október 2020 07:03 „Þetta er bara hark og það þarf bara að leggja inn vinnuna“ Avo fékk nýverið 419 milljónir króna fjármögnun frá Kísildal. Stofnendur unnu áður hjá Plain Vanilla Games við gerð leikjarins QuisUp. 28. september 2020 07:09 Fullorðinsvörur, sérvörur fyrir Japansmarkað og nýfenginn styrkur 8. september 2020 09:00 Vinna náið með Facebook og Sony og ætla að fjölga starfsfólki Sýndarveruleiki þar sem notendur hafa töframátt og geta án þess að nota stýripinna framkvæmt alls skyns galdra með því að smella eigin fingrum, láta hluti hverfa, skjóta eldingum, lengja fingur, breyta hlutum í froska og fleira. 28. ágúst 2020 09:00 Mest lesið Nýjustu vísbendingar bendi til komandi kólnunar Viðskipti innlent Aðstoðarforstjóri Play hættur Viðskipti innlent Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Neytendur Dæmi um fimmtíu prósenta hækkun á matvöru Neytendur Hugmyndir fyrir tómlega vinnustaði og leiðinlega vinnudaga Atvinnulíf Rukkaður um 2800 króna aukagjald í Reynisfjöru Neytendur Ofuráhersla á umhverfismálin þegar sjálfbærnin snýst í raun um fólk Atvinnulíf Tælenskt hveiti úr umferð Neytendur Horfurnar versna hjá Play sem kippir afkomuspá úr gildi Neytendur Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ofuráhersla á umhverfismálin þegar sjálfbærnin snýst í raun um fólk Hugmyndir fyrir tómlega vinnustaði og leiðinlega vinnudaga Sváfu með fullt af evrum undir koddanum fyrir flugmiðum heim ef þyrfti Ástin laðar að: Lúpínugallabuxur markmið næsta árs Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Betra en ekki að viðurkenna mistökin Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Hafa þróað kerfi til að auka á gagnsæi viðskipta með kolefniseiningar „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Óöryggi, feimni og jafnvel einmanaleiki í nýju sumarvinnunni Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Níu manns sagt upp hjá Veitum Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Að sækja um starf eftir uppsögn Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Að standa upp til að gera eitthvað og muna síðan ekkert hvað það var „Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“ Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Sjá meira
Endurvinna 85% af bifreiðum með því að endurnýta varahluti og selja Aðalheiður Jacobsen eigandi Netparta segir fyrirtæki ekki munu lifa af samkeppni framtíðarinnar ef þau eru ekki umhverfisvæn og samfélagslega ábyrg. Hún segir umhverfisvæna starfssemi einnig fela í sér efnahagslegan ávinning. 5. október 2020 07:03
„Þetta er bara hark og það þarf bara að leggja inn vinnuna“ Avo fékk nýverið 419 milljónir króna fjármögnun frá Kísildal. Stofnendur unnu áður hjá Plain Vanilla Games við gerð leikjarins QuisUp. 28. september 2020 07:09
Vinna náið með Facebook og Sony og ætla að fjölga starfsfólki Sýndarveruleiki þar sem notendur hafa töframátt og geta án þess að nota stýripinna framkvæmt alls skyns galdra með því að smella eigin fingrum, láta hluti hverfa, skjóta eldingum, lengja fingur, breyta hlutum í froska og fleira. 28. ágúst 2020 09:00