Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson eru að leggja lokahönd á jólaplötu og mun hún koma út þann 27. nóvember næstkomandi. Sigríður tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum en útgáfutónleikar þurfa hugsanlega að bíða betri tíma. Platan kallast einfaldlega Það eru jól.
Á plötunni má finna samansafn af lögum sem þau Sigríður og Sigurður hafa gert saman síðustu ár og einnig er þar að finna þrjú ný lög. Sigríður og Sigurður eru á meðal ástsælustu söngvara landsins en forsalan á plötunni er nú þegar hafin og geta aðdáendur þeirra pantað árituð eintök.
Vildu ekki leggja árar í bát
„Svo getum við vonandi spilað þetta fyrir ykkur einhvernveginn, einhverntímann, einhversstaðar fyrir jól,“ skrifaði Sigríður meðal annars í færslunni. Undanfarin sex ár hafa Sigríður og Sigurður haldið jólatónleika saman. Í samtali við Vísi segir hún að þau hafi ætlað sér að halda þá sjöundu núna í ár.

„Við höfum alltaf gefið út eitt lag í aðdraganda þeirra. Sum eru ekki hefðbundin jólalög heldur meira svona vetrarlög eða heilsárslög, önnur sannkölluð jólalög. Hugmyndin var alltaf að þau myndu svo enda saman á plötu. Við ákváðum að taka upp þrjú ný lög núna og þá vorum við komin með akkúrat plötulengd. Við vitum auðvitað ekkert hvað verður um jólin eða aðventuna í ár en vildum absalut ekki leggja árar í bát og ákváðum að þetta væri akkúrat árið og tíminn fyrir plötuna. Svo sjáum við bara hvort eða hvenær eða hvernig við getum spilað hana live fyrir fólk þessa aðventuna.“
Lagalisti plötunnar Það eru jól:
- Freistingar
- Vindar að hausti
- Það eru jól
- Hjarta mitt
- Notalegt
- Annað haust
- Er líða fer að jólum
- Desemberkveðja
- Hvað ertu að gera á gamlárs?