Innlent

„Heil­brigðis­þjónusta á með­göngu grund­vallar­mann­réttindi“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður utan flokka.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður utan flokka. Vísir/Vilhelm

Þingmenn tókust í dag á um þingsályktunartillögu átján þingmanna um að erlendar konur sem sæti banni við þungunarrofi í heimalandi sínu geti fengið slíka þjónustu á Íslandi hafi þær evrópskt sjúkratryggingakort og uppfylli lagaskilyrði.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir utan þingflokka er fyrsti flutningsmaður tillögunnar sagði í Kvöldfréttum Stöðvar 2 að meginatriði frumvarpsins sé það að aðgengi að heilbrigðisþjónustu á meðgöngu séu grundvallarmannréttindi kvenna. Um það sé staðið vörð.

Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi þingsályktunartillöguna í morgun og sagði hann tillöguna kalla á aukið álag á íslenskt heilbrigðiskerfi. Þingsályktunartillagan felur heilbrigðisráðherra að tryggja að einstaklingar sem ferðist hingað til lands til þungunarrofs fái viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Kveikjan að frumvarpinu er ekki síst hert löggjöf um þungunarrof í Póllandi.

„Ég spyr hvort það sé hlutverk heilbrigðiskerfisins á Íslandi að bregðast við pólitísku heilbrigðisvandamáli tugmilljóna þjóða þegar við glímum við biðlista í heilbrigðiskerfinu sem okkur öll dreymir um að eyða. Er svona tillaga ekki atlaga að íslensku heilbrigðiskerfi?“ spurði Ásmundur.

Rósa Björk segir engar upplýsingar liggja fyrir um það hversu margar konur myndu koma hingað og nýta sér þjónustuna. 

„Ásmundur Friðriksson er nú þekktur fyrir að fara ansi frjálslega með tölur. Við erum ekki með neinar tölur um hversu margar konur myndu koma hingað. Það er ljóst, og ég hef líka verið í sambandi við pólsk mannréttindasamtök sem hafa verið að segja mér frá því að nágrannaríkin og samtök þar hafa verið að bjóða fram aðstoð sína,“ sagði Rósa Björk.

„Það er nokkuð viðbúið að pólskar konur leiti skemmra yfir veginn til þess að leitast eftir þessari þjónustu. Þannig að ég held að það sé nú tóm vitleysa að tala um að það komi hundruð þúsunda kvenna í þungunarrof.“

Hún segir það koma skýrt fram í þingsályktunartillögunni að handhafar evrópska sjúkratryggingarkortsins geti nýtt þjónustuna. Það sé sama kortið og við Íslendingar notum þegar við ferðumst til Evrópu og leitumst eftir heilbrigðisþjónustu þar.

„Það er kostnaður sem skiptist á milli Evrópuríkjanna og þau hafa gert samkomulag um á milli sín. Ég geri ekki ráð fyrir verulegum kostnaði fyrir ríkissjóð,“ segir Rósa.


Tengdar fréttir

Ásmundur gagnrýnir þingsályktun um þungunarrofsaðstoð

Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir þingsályktun átján stjórnarandstöðuþingmanna um að íslenska heilbrigðiskerfið aðstoði erlendar konur sem hingað kunni að koma til þungunarrofs vegna strangra laga um slíkar aðgerðir í heimalandinu.

Fresta gildistöku umdeildrar ákvörðunar um þungunarrof

Stjórnvöld í Póllandi hafa frestað gildistöku ákvörðunar stjórnlagadómstóls landsins, sem komst á dögunum að þeirri niðurstöðu að þungunarrof vegna fósturgalla bryti í bága við stjórnarskrá landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×