Sautján ára leikmaður Dortmund gæti þreytt frumraun sína gegn Íslandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. nóvember 2020 13:30 Jude Bellingham þykir gríðarlega efnilegur leikmaður. getty/Matteo Ciambelli
Jude Bellingham, sautján ára leikmaður Borussia Dortmund, hefur verið kallaður inn í enska landsliðið í stað James Ward-Prowse sem er meiddur. Bellingham átti upphaflega að vera í U-21 árs landsliði Englands en hefur nú verið valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn. England mætir Írlandi í vináttulandsleik á fimmtudaginn, Belgíu í Þjóðadeildinni á sunnudaginn og Íslandi í sömu keppni eftir viku. Ef Bellingham kemur við sögu í þessum leikjum verður hann þriðji yngsti landsliðsmaður Englands frá upphafi. Theo Walcott á metið en hann var sautján ára og 75 daga þegar hann lék sinn fyrsta landsleik 2006. Wayne Rooney átti metið en hann var sautján ára og 111 daga er hann þreytti frumraun sína með landsliðinu. Bellingham gekk í raðir Dortmund frá Birmingham City í sumar. Hann hefur farið vel af stað með þýska liðinu og skoraði m.a. í fyrsta leik sínum fyrir það. Bellingham er yngsti markaskorari í sögu Dortmund. Ekki liggur enn fyrir hvort leikur Englendinga og Íslendinga geti farið fram á Englandi vegna sóttvarnareglna. Rætt hefur verið um leikurinn verði utan Englands og hafa Albanía og Þýskalandi verið nefnd í því samhengi.
Þjóðadeild UEFA Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Íslenska íþróttafólkið fékk gefins síma og smokka Sport „Ég varð fyrir vonbrigðum með Gylfa“ Íslenski boltinn Þórir fékk gleðifréttir í gær Handbolti Uppgjörið: Drita - Breiðablik 1-0 | Evrópusumarið á enda runnið Fótbolti Anton Sveinn komst áfram í undanúrslit Sport Gylfi ekki með Val til Skotlands Fótbolti Fagnaði sigri á Ólympíuleikunum komin sjö mánuði á leið Sport Áfrýja stigafrádrættinum en ekki leikbanni þjálfarans fyrrverandi Fótbolti Skilur ekkert í skipuleggjendum: „Alveg út í hött“ Sport Hringdi strax í ömmu sína og sýndi henni Ólympíugullið Sport Fleiri fréttir Fulham kaupir Smith Rowe og skilur Liverpool eitt eftir Skytturnar kynna Calafiori til leiks Man. Utd vill hundrað þúsund manna leikvang fyrir árið 2030 Phillips vill fara frá Man City Segir að Liverpool muni spila með „alvöru framherja“ í vetur Meiðslamartröð Man Utd heldur áfram Thiago meiddur og setur félagaskipti Toney í hættu Fulham gerir Smith Rowe að dýrasta leikmanni í sögu félagsins Réðst á leikmann Wrexham eftir tvær mínútur í æfingaleik Kvennalið Man. Utd. býr og starfar á æfingasvæði enska landsliðsins Tottenham að fá landa Sons Aston Villa eyðir mest af öllum félögum í Evrópu Ederson spilaði æfingaleik en Pep veit ekki hvort hann verði áfram Aldrei eins margar ábendingar um mismunun á einu tímabili Danny Drinkwater fjárfesti illa og starfar nú sem iðnaðarmaður „Það verða engin vandræði“ þegar Enzo mætir aftur til Chelsea Ætlar að þagga niður í þeim sem segja ljóta hluti um sig á veraldarvefnum PSG sýnir Sancho óvænt áhuga Leikmaður Man City neitar sök í eiturlyfjamáli Guardiola: Nei, Kevin er ekkert að fara Státar sig af gengi United liðsins undir hans stjórn Ákærður Barton segir Bretland verðandi bananalýðveldi Sá leikjahæsti tekur skóna óvænt fram á nýjan leik Onana leysir Luiz af hólmi á Villa Park Chelsea kaupir Kana Grínuðust með nýja varabúning Arsenal Ten Hag vill halda McTominay Kóngurinn Cantona: „Þarft að njóta leiksins og hafa ástríðu fyrir honum“ Íslendingar aftur til Englands: Hver er næstur? Segir Rangnick hafa haft rétt fyrir sér varðandi vandamál Man Utd Sjá meira