Samkvæmt veðbönkum þykir afar ólíklegt að Tiger Woods verji titil sinn á Masters mótinu í golfi sem hefst á fimmtudaginn.
Tiger vann Masters mótið á eftirminnilegan hátt í fyrra en það var hans fyrsti sigur á risamóti í ellefu ár og sá fyrsti á Masters í fjórtán ár. Tiger hefur alls fimm sinnum unnið Masters. Jack Nicklaus á metið yfir flesta sigra á Masters en hann vann mótið sex sinnum á sínum tíma.
Ef marka má spá veðbanka þykir Tiger ekki líklegur til afreka á Masters í ár. Hann er í 18. sæti yfir þá sem eru líklegastir til að vinna græna jakkann í ár.
Bryson DeChambeau er efstur á lista veðbanka. Bandaríski kraftakarlinn stefnir á að fylgja sigri sínum á Opna bandaríska meistaramótinu eftir og vinna annað risamótið í röð.
Efsti maður heimslistans, Dustin Johnson, er í 2. sæti á lista veðbanka. Hann varð annar á Masters í fyrra, einu höggi á eftir Tiger. Johnson hefur aðeins unnið eitt risamót á ferlinum, Opna bandaríska 2016.
Jon Rahm í 3. sæti á lista veðbanka, Justin Thomas í því fjórða og Rory McIlroy í því fimmta. Sá síðastnefndi bíður enn eftir fyrsta sigri sínum á risamóti síðan 2014. Masters er jafnframt eina risamótið sem McIlroy hefur ekki unnið á ferlinum.
Masters átti að fara fram 9.-12. apríl en var frestað vegna kórónuveirufaraldursins. Engir áhorfendur verða á mótinu að þessu sinni. Að venju fer Masters fram á Augusta National golfvellinum í Georgíu í Bandaríkjunum.
Masters mótið hefst á fimmtudaginn. Sýnt verður frá öllum keppnisdögunum á Stöð 2 Golf.