Skoðun

Risastóri misskilningurinn

Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar

Þegar ráfað er í gegnum fjöl- og samfélagsmiðla má oft finna talsverða neikvæðni hjá einkabílanotendum í garð breyttra ferðavenja í formi hjólreiða. Margir hafa meira að segja gagnrýnt kostnað sem sveitarfélög leggja í við uppbyggingu á hjólreiðastígum. Þetta er afar áhugavert í ljósi eftirfarenda staðreynda:

Breyttar ferðavenjur skapa meira rými fyrir þá sem kjósa einkabílinn

Eitt af því sem virðist pirra suma einkabílanotendur hvað mest eru umferðateppur. Málið er einfalt, því fleiri ferðir sem farnar eru með hjóli, því færri verða bílferðirnar. Einföld eðlisfræði segir okkur að ferðir í einkabíl eru mun plássfrekari en aðrar ferðvenjur. Niðurstaðan er því einföld, færri bílakílómetrar skapa meira bílapláss.

Breyttar ferðavenjur geta lækkað eldsneytiskostnað einkabílsins

Það kostar ekki bara dýrmætan gjaldeyri að kaupa olíu á bíla heldur kostar líka enn meiri gjaldeyri að kaupa bílana sjálfa, dekkin og varahlutina. Ef fleiri kjósa breyttar ferðavenjur þá dregur verulega úr gjaldeyrisútflæði sem styrkir venjulega krónuna, sem aftur skilar meiri kaupmætti fyrir alla og lækkun á olíuverði innanlands. Niðurstaðan er því einföld, færri bílakílómetrar auka kaupmátt og lækka olíukostnað einkabílsins.

Breyttar ferðavenjur geta lækkað kostnað vegna losunar gróðurhúsaloftegunda

Vegasamgöngur eru stærsti losunarþáttur gróðurhúsaloftegunda sem eru á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Ef ekki tekst að ná loftslagsmarkmiðum Íslands blasa við sektargreiðslur sem geta orðið verulega háar. Sá kostnaður mun lenda á ríkinu sem eru við sjálf, þannig að reikningurinn lendir líka hjá okkur sem notum einkabíla. Ef fleiri kjósa breyttar ferðavenjur aukast líkurnar á að markmiðin náist og að sektargreiðslurnar verði minni. Niðurstaðan er því einföld, færri bílakílómetrar lækka kolefniskostnað þjóðarinnar þ.á.m. eigenda einkabíla.

Breyttar ferðavenjur geta lækkað kostnað heilbrigðiskerfisins

Samkvæmt fjármálaráðuneytinu eru útgjöld til heilbrigðismála 753 þúsund kr. á hvern íbúa landsins. Við einkabílaeigendur, og aðrir skattgreiðendur borgum auðvitað þann reikning. Samkvæmt nýlegri samantekt í Danmörku eru heilsufarsáhrif hjólreiða svo jákvæð, að sparnaður í heilbrigðiskostnaði hefur verið metin á 8 danskar krónur á hvern hjólakílómetra. Þetta þýðir að fyrir hvern kílómetra sem við fáum fólk til að ferðast með hjóli eða rafhjóli gætu 170 kr. sparast á endanum í heilbrigðisútgjöld. Það lækkar framtíðarkostnað allra skattgreiðenda, líka hjá eigendum einkabíla.

Allir græða

Þó að fólk velji að breyta ekki um ferðvenjur og halda sig eingöngu við einkabílinn þá er alveg skýrt að allir græða á auknum hjólreiðum. Rafhjól hafa opnað á viðtækari nýtingu hjólreiða þar sem brekkur og mótvindur verða minna vandamál. Ríkið hef stigið risastórt skref í stuðningi við hjólreiðar með niðurfellingu á virðisaukaskatti, enda bæta jákvæð umhverfis- og efnahagsáhrif það skatttekjutap margfalt. Ljóst er að allir græða með einhverjum hætti á auknum hjólreiðum, líka þeir sem kjósa að nýta sér aldrei þennan frábæra ferðamáta.

Höfundur er framkvæmdastjóri Orkuseturs




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×