Lífið

Skrautlegt kynlífsatriði Danna og Fríðu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Anna Fríða og Auðunn fara á kostum í atriðinu.
Anna Fríða og Auðunn fara á kostum í atriðinu. Vísir/Stöð 2

Þættirnir Eurogarðurinn hafa slegið í gegn undanfarna mánuði á Stöð 2. Þar er fjallað um hóp af starfsmönnum skemmtigarðsins og ævintýri þeirra. 

Í gærkvöldi var lokaþátturinn af fyrstu seríunni og vakti þátturinn mikla athygli. Það er alveg ljóst að önnur þáttaröð mun líta dagsins ljós, svona miðað við hvernig þessi sería endaði. 

Upphafsatriðið í þættinum í gær var heldur skrautlegt. Þar mátti sjá kynlífsatriði með þeim Danna og Fríðu. Auðunn Blöndal fer með hlutverk Danna og Anna Svava Knútsdóttir leikur Fríðu. 

Það má með sanni segja að atriðið hafi verið heldur vandræðalegt og kannski ekki beint eins og fólk vill hafa hlutina þegar það stundar kynlíf í fyrsta skipti. 

Öll fyrsta þáttaröðin af Eurogarðinum fer inn á Stöð 2 Maraþon í dag en hér að neðan má sjá atriðið sjálft. 

Klippa: Skrautlegt kynlífsatriði Danna og Fríðu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.