Lífið

Arftaki Joe Exotic kærður fyrir dýraníð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jeff Lowe kom við sögu í þáttunum Tiger King.
Jeff Lowe kom við sögu í þáttunum Tiger King. mynd/netflix

Jeff Lowe sem kom fram í þáttunum vinsælu Tiger King hefur verið kærður fyrir dýraníð. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Þættirnir Tiger King fjölluðu að mestu um deilur Carole Baskin og Joseph Maldonado-Passage, sem einnig er þekktur sem Joe Exotic, en hann hélt því ítrekað fram að hún hefði myrt eiginmann sinn.

Joe Exotic, sem nú afplánar fangelsisdóm fyrir að hafa reynt að fá leigumorðingja til að ráða áðurnefnda Baskin af dögum, eyddi stórum hluta ferils síns sem eigandi „framandi dýragarðs“ í að áreita Baskin í illdeilum sem sjást vel í heimildaþáttunum Tiger King. 

Exotic hélt því statt og stöðugt fram, í mörg ár, að Baskin hefði orðið fyrrum eiginmanni sínum, Don Lewis, að bana.

Fjölskylda Don Lewis, sem hvarf árið 1997, höfðaði mál gegn fyrrverandi eiginkonu hans, Baskin.

Lewis hvarf degi áður en hann ætlaði að fara til Costa Rica og var lýstur látinn árið 2002. Hann og Baskin voru enn gift en hann hafði þó fengið nálgunarbann gagnvart henni tveimur mánuðum áður en hann hvarf. Baskin hefur ítrekað neitað því að hafa orðið eiginmanni sínum að bana.

Jeff Lowe kom inn sem fjárfestir í dýragarðinn fræga og seinna tók hann við af Joe Exotic.

Dómsmálaráðuneytið í Bandaríkjunum hefur kært Lowe og eiginkonu hans Laren Lowe fyrir dýraníð í garðinu og þá sérstaklega í garð ljóna og tígrisdýra.

Þau hjónin tóku yfir umsjón garðsins árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.