Innlent

Ólafur Helgi kallaður til yfirheyrslu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, sést hér á fundi dómsmálaráðherra með öllum lögreglustjórum landsins fyrir um ári síðan.
Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, sést hér á fundi dómsmálaráðherra með öllum lögreglustjórum landsins fyrir um ári síðan. Vísir/Vilhelm

Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum og núverandi sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, hefur verið kallaður til yfirheyrslu vegna rannsóknar héraðssaksóknara.

Auk hans hafa tveir starfsmenn hjá lögreglunni á Suðurnesjum verið kallaðir til yfirheyrslu og hafa þeir verið sendir í leyfi á meðan á rannsókninni stendur.

Frá þessu greinir Fréttablaðið á forsíðu sinni í dag. Í frétt blaðsins segir að ekki séu staðfestar heimildir fyrir sakarefninu en blaðið hafi heimildir fyrir því að starfsmennirnir tveir hafi verið kallaðir á fund í haust hjá þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum til að ræða meint trúnaðarbrot.

Ólafur Helgi vildi ekki tjá sig við Fréttablaðið um málið þegar leitað var eftir því. Hann lét af störfum sem lögreglustjóri á Suðurnesjum í ágúst og hóf störf í kjölfarið sem sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu.

Grímur Hergeirsson tók tímabundið við stöðunni en í nóvember var Úlfar Lúðvíksson, sem hafði verið lögreglustjóri á Vesturlandi, ráðinn í embættið.

Fjölmiðlar fjölluðu í sumar um deilur innan lögreglunnar á Suðurnesjum og var meðal annars greint frá því að yfirlögfræðingur, mannauðsstjóri og aðstoðarsaksóknari embættisins fóru í veikindaleyfi eftir að tveir starfsmenn embættisins kvörtuðu undan einelti yfirmannanna til Ólafs Helga. Hafa yfirmennirnir alfarið neitað þeim ásökunum.

Að því er heimildir Fréttablaðsins herma snýr meint trúnaðarbrot að hluta til að birtingu bréfs sem Ólafur Helgi sendi dómsmálaráðuneytinu í sumar, áður en hann lét af störfum sem lögreglustjóri. Í bréfinu fór hann fram á að ráðuneytið myndi skoða veikindi fyrrnefndra yfirmanna nánar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×