Innlent

Hafnarfjarðarvegi lokað vegna bílveltu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Hafnarfjarðarvegi hefur verið lokað vegna bílveltu.
Hafnarfjarðarvegi hefur verið lokað vegna bílveltu. Vísir/Vilhelm

Hafnarfjarðarvegi milli Hamraborgar og Arnarnesshæðar hefur verið lokað vegna bílveltu sem varð við Kópavogslæk.

Einn var í bílnum og var hann fluttur slasaður á slysadeild að sögn varðstjóra slökkviliðs. Bíllinn er að hans sögn mikið skemmdur en aðgerðum er við það að ljúka á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×