Viðskipti innlent

Hyggja á gjald­töku á bíla­stæðinu við Reykja­dal

Atli Ísleifsson skrifar
Reykjadalur er vinsæll áfangastaður ferðamanna.
Reykjadalur er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Wikipedia Commons/Jakub Fryš

Hveragerðisbær hyggst hefja gjaldtöku á bílastæðinu á Árhólum þar sem göngufólk leggur jafnan bílum sínum þegar gengið er upp í Reykjadal.

Sunnlenska segir frá þessu og vísar í fundargerð bæjarstjórnar frá í síðustu viku. Gjaldtakan mun hefjast um leið og framkvæmdum við gerð salernisaðstöðu og þjónustuhúss er lokið.

Tillögur að gjaldi og fyrirkomulagi gjaldtökunnar verða lagðar fyrir bæjarráð í janúar næstkomandi, en sérstaklega er tekið fram að bílastæðagjaldinu sé ætlað að standa straum af kostnaði við uppbyggingu á staðnum og þjónustu sem veitt er gestum.

„Bílaplanið eitt og sér kostaði ríflega 40 milljónir og bæjarfélagið mun greiða rekstraraðilum á svæðinu fyrir þá þjónustu sem veitt er þeim fjölmörgu sem um það fara,“ segir í fundargerðinni.

Nýtist til uppbyggingar á göngustígum

Bæjarstjórn segir vonir standa til að hægt sé að setja fjármuni í nauðsynlega uppbyggingu göngustíga og úrbætur inn í Reykjadal og að ágóði af bílastæðinu, ef einhver verði, muni eingöngu nýtast til uppbyggingar á umhverfi og aðkomu svæðisins.

Bæjarstjórn hefur jafnframt samþykkt að taka tilboði Öryggismiðstöðvarinnar um bílastæðalausn og að undirbúningur að gjaldtöku hefjist nú þegar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×