Innlent

Þrír greindust með veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Tæplega 5.600 manns hafa greinst með kórónuveiruna á Íslandi frá upphafi heimsfaraldursins.
Tæplega 5.600 manns hafa greinst með kórónuveiruna á Íslandi frá upphafi heimsfaraldursins. Vísir/Vilhelm

Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Líkt og í gær eru 33 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af þrír á gjörgæslu.

Sex smit greindust á landamærum - eitt virkt í fyrri landamæraskimun og annað í seinni landamæraskimun. Þá var einn með mótefni og er niðurstöðu mótefnamælingar beðiði í tilvikum þriggja.  

142 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 144 í gær. Þá eru 293 í sóttkví í dag, samanborið við 366 í gær. 

Þriðja bylgjan.

Af þeim þremur sem greindust í gær greindust allir eftir svokallaða einkennasýnatöku.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 31,4 en var 35,5 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 10,6, en var 10,4 í gær.

Alls hafa 5.571 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 28 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 898 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 613 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá var tekið 81 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun og 280 í annarri skimum hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×