Viðskipti innlent

Mis­vísandi að segja launa­kostnað flug­manna stóran þátt í rekstrar­vanda

Sylvía Hall skrifar
Félagið segir laun flugmanna Icelandair ekki vera hærri en á hinum alþjóðlega markaði.
Félagið segir laun flugmanna Icelandair ekki vera hærri en á hinum alþjóðlega markaði. Vísir/Vilhelm

Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur sent frá sér tilkynningu þar sem félagið segir misvísandi að ýja að því að launakostnaður flugmanna Icelandair sé stór þáttur í rekstrarvanda félagsins. Í gær var greint frá því að reynt yrði að endursemja við flugmenn og flugliða þar sem launakostnaður væri afar hár.

Sjá einnig: Til greina komi að skera flotann niður um helming

Félagið segir laun flugmanna Icelandair ekki vera hærri en á hinum alþjóðlega markaði. Launin séu fyllilega sambærileg launum hjá öðrum flugfélögum víða um heim. Þá sé ekki rétt að flugmenn WOW air hafi verið með mun lægri laun en flugmenn Icelandair heldur hafi þau verið sambærileg.

„Nýting flugmanna gæti verið betri hjá Icelandair, en hluta vandans má að stærstu leiti rekja til kyrrsetningar B 737 Max flugvéla félagsins. Breytingar á leiðarkerfi höfðu einnig neikvæð áhrif á nýtingu ásamt innra skipulagi og einstökum ákvörðunum stjórnenda,“ segir í tilkynningu félagsins.

Kjarasamningar komi ekki í veg fyrir að starfskraftar þeirra séu nýttir til jafns við það sem best gerist erlendis. Flugmenn hafi sjálfir haft frumkvæði að því að bæta nýtingu og hafi jafnframt lagt fram fullmótaðar tillögur þess efnis í öllum kjaraviðræðum frá árinu 2011.

„Vert er að geta þeirra breytinga sem gerðar voru á kjarasamningi árið 2018 til að auka nýtingu flugmanna og efla markaðssókn félagsins til muna. Vegna kyrrsetningar B737 Max véla Icelandair á sú hagræðing enn eftir að skila sér að fullu þegar betur árar.“

Flugmenn munu hjálpa félaginu 

Í tilkynningunni segir að flugmenn muni leggja sitt af mörkum til þess að létta fyrirtækinu róðurinn. Þeir hafi sýnt viljann í verki með því að fresta umsömdum launahækkunum á síðasta ári, framlengja kjarasamninga án launahækkana og tóku á sig 50% launaskerðingu í apríl og maí.

„Nú þegar hefur 23% flugmanna Icelandair verið sagt upp störfum og fleiri uppsagnir hafa því miður verið boðaðar. FÍA hefur ekki upplýsingar um hvert endanlegt umfang þeirra uppsagna kann að verða.“

Félagið segir jafnframt að það sé bæði ósanngjarnt og villandi að velta ábyrgðinni á framtíð félagsins yfir á starfsfólk. Rekstrarvandi félagsins sé flóknari en það.

„Rekstrarvandi Icelandair er flókið samspil ytri og innri þátta og flugmenn ætla að taka þátt í að leysa úr þeim vanda með fyrirtækinu á næstu mánuðum.“


Tengdar fréttir

Fleiri uppsagnir um mánaðamótin

Forstjóri Icelandair segir óhjákvæmilegt að grípa til frekari uppsagna á næstu vikum. Ráðist verður í hlutafjárútboð á næstunni






Fleiri fréttir

Sjá meira


×