Innlent

Alelda bíll á Miklubraut

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Bíllinn var nær alelda.
Bíllinn var nær alelda. Teitur H. Syen

Eldur kviknaði í bíl á Miklubraut, skammt frá göngubrúnni á milli Skeifunnar og Sogavegar, um áttaleytið í morgun. Lið frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sent á vettvang og slökkti eldinn, af myndum af vettvangi að dæma.

Svartan reyk lagði upp af bílnum, hvítum sendibíl, sem staddur er á akreininni í norður. 

Engar upplýsingar fengust um málið hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þegar leitað var eftir því nú snemma á níunda tímanum, utan þess að verið væri að sinna útkallinu.

Uppfært klukkan 8:50:

Búið er að slökkva eldinn í bílnum og opna fyrir umferð um Miklubraut á svæðinu, sem lokað var á meðan slökkvilið athafnaði sig á vettvangi. Ökumaður komst sjálfur út úr bílnum og sakaði ekki, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Slökkvilið slekkur eldinn á níunda tímanum.Vísir/vilhelm
Frá vettvangi á Miklubraut í morgun. Svartan reykjarmökk lagði frá bílnum.Teitur H. Syen
Eldurinn slökktur.Vísir/vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×