Menning

Hótel Volkswagen

Tinni Sveinsson skrifar
Höfundurinn Jón Gnarr tekur sjálfur þátt í leiklestri Hótel Volkswagen í kvöld.
Höfundurinn Jón Gnarr tekur sjálfur þátt í leiklestri Hótel Volkswagen í kvöld. Borgarleikhúsið

Í kvöld klukkan 20 verður beint streymi frá leiklestri á leikritinu Hótel Volkswagen eftir Jón Gnarr.

Jón Gnarr mun sjálfur taka þátt í leiklestrinum og ásamt honum verða leikararnir Bergur Þór Ingólfsson, Halldór Gylfason, Hallgrímur Ólafsson, Haraldur Ari Stefánsson og Vala Kristín Eiríksdóttir.

Verkið var upphaflega frumsýnt í Borgarleikhúsinu í mars 2012 í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Streymið hefst klukkan 20 og verður þá aðgengilegt í spilaranum hér fyrir neðan.

Uppfært: Útsendingin er búin en hér má sjá upptöku.

Klippa: Hótel Volkswagen

Framundan hjá Borgó í beinni

Á morgun, föstudag klukkan 12, verða tónleikar með Bubba Morthens í beinni frá Stóra sviði Borgarleikhússins þar sem hann mun leika nokkur af sínum bestu lögum og segja sögur um tilurð laganna.

Laugardagar eru tileinkaðir ungu kynslóðinni í streymi Borgarleikhússins. Á laugardaginn klukkan 12 mun leikkonan Katla Margrét Þorgeirsdóttir les söguna um Greppikló.

Þann sama dag klukkan 14 verður eitthvað fyrir þá sem hafa gaman að spilum eða tölvuleikjum því leikarar í Borgarleikhúsinu ætla að spila saman Dungeons and Dragons.

Á sunnudag er síðan komið að stórsýningunni Ríkharður III en hún verður sýnd klukkan 20 um kvöldið.

Fleira skemmtilegt efni frá Borgarleikhúsinu má sjá á Instagram og Facebook-síðum leikhússins en þær síður eru uppfærðar nær daglega með efni tengdu starfsemi og sýningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.