Húmorinn í myndum Lóuboratoríum er hreint óborganlegur þessa dagana: Allt það spaugilega og mannlega sem margir samsvara sig við í fjarvinnu, sóttkví eða heimaviðveru. Myndirnar eru snilldar kórónuhúmor og ljóst að höfundur þeirra er að fylgja eftir tilmælum landlæknis: Töpum ekki gleðinni!
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er höfundur Lóuboratoríum. Hún starfar sem myndasögu- og handritshöfundur og teiknari. Lóa hefur líka gefið út fjöldann allan af bókum og stefnir á nýja barnabók í haust.
Lóa Hlín situr fyrir svörum í kaffispjalli helgarinnar. Þar spyrjum við fólk alltaf um það hvenær það vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um vinnuna og skipulagið.
Ógreitt hárið og snús
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Á góðum dögum vakna ég í kringum 7:00-7:30, á slæmum 7:45-8:00 og þarf þá að rjúka af stað með son minn í skólann og setja húfu á höfuðið svo enginn taki eftir því að ég hafi ekki náð að greiða mér.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Það fyrsta sem ég geri er að ýta á snooze og sofna aftur í 10 mínútur svo fer ég og vek barnið mitt.
Svo fer ég heim og greiði mér og fer svo niður á vinnustofu.“

Teiknar í vinnunni á daginn og Lóaboratoríum á kvöldin
Er Lóaboratoríum að endurspegla lífið þitt þessa dagana eða hvaðan færðu hugmyndirnar?
„Lóaboratoríum endurspeglar líf mitt á ákveðinn hátt en spegillinn er beyglaður.
Ég nota ýmsar aðferðir við að fá hugmyndir til dæmis að teikna fyrst klessur og sjá hvað þær minna mig á og reyna að fá hugmyndir út frá formunum.
Stundum nota ég setningar úr samtölum við kærastann minn.“
Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Ég er að teikna myndir fyrir fólk, selja prent og sendast með þau.
Svo er ég að skrifa bók fyrir börn sem á að koma út í haust.
Á kvöldin geri ég svo alltaf eina myndasögu og set á síðuna mína Lóaboratoríum á Facebook og Instagram.
Ég þýði líka sögurnar fyrir Instagram á ensku og birti á báðum tungumálum þar.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Með mjög gamaldags aðferðum.
Ég nota skissubók sem dagbók og skrifa þar niður allt dótaríið. Ég reyni að byrja hvern dag á því.
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Í fyrsta lagi hálf eitt. Ég á mjög erfitt með að hætta þeim ósið að fara of seint að sofa.“