Breiðþota með yfir fjórar milljónir andlitsgríma frá Kína lenti á Spáni snemma í morgun. Þetta er hluti af loftbrú sem evrópski Airbus-flugvélaframleiðandinn hefur skipulagt til að koma hjálpargögnum sem Kínverjar hafa aflögu sem hraðast til ríkja Evrópu í baráttunni gegn kórónu-faraldrinum.
Bæði farangursrými og farþegarými þotunnar voru hlaðin kössum með andlitsgrímum. Á flugvellinum komu hermenn og flugvallarstarfsmenn hjálpargögnunum um borð í herbíla sem flytja þau áfram til sjúkrastofnana og stjórnsýslumiðstöðva þar sem þörfin er talin mest; á Spáni, í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi.

Flugvélin, af gerðinni Airbus A330, lagði upp frá borginni Getafe í útjaðri Madríd-borgar á fimmtudagskvöld og lenti í borginni Tianjin í Kína í gær.
Hún lenti svo með farminn á Spáni um fjögurleytið í morgun að staðartíma.

Undanfarna daga hefur Airbus farið nokkur slík flug milli Evrópu og Kína og gefið andlitsgrímur til sjúkrastofnana og opinberra aðila víðsvegar um Evrópu, en flugmenn Airbus fljúga vélunum.
Í upphaflegu útgáfu fréttarinnar mátti skilja að Kína væri að gefa grímurnar en það er Airbus sem er að gefa þær frá Kína.
Hér má sjá myndband frá komu þotunnar til Getafe í morgun: