Menning

Bein útsending: Stórsýningin Ríkharður III

Tinni Sveinsson skrifar
Hjörtur Jóhann Jónsson fór með hlutverk Ríkharðs III í sýningunni.
Hjörtur Jóhann Jónsson fór með hlutverk Ríkharðs III í sýningunni. Borgarleikhúsið.

Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða landsmönnum heima í stofu upp á skemmtun á tímum samkomubanns.

Í kvöld klukkan 20 er komið að einu af stórvirkjum leikhússögunnar, Ríkharði III, sýningunni sem var valin sýning ársins á Grímunni í fyrra.

„Hér er á ferðinni sannkallað listaverk sem alls ekki má missa af,“ sagði í leikdómi Sigríðar Jónsdóttur, sem birtist hér á Vísi.

Um er að ræða upptöku af sýningunni eins og hún var sett á svið í fyrra. Hægt verður að horfa á hana bæði hér á Vísi og á Stöð 3.

Fyrir sýninguna verður sýnt forspjall þar sem Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri, sem leikstýrði sýningunni, Hjörtur Jóhann Jónsson, sem fór með aðalhlutverkið, og Kristján Þórður Hrafnsson, skáld og þýðandi, ræða verkið og sýninguna.

Klippa: Ríkharður III - leiksýningin með forspjalli

Á meðan lesendur bíða eftir því að sýningin hefjist er hægt að rifja upp nokkur kynningarmyndbönd sem búin voru til fyrir frumsýninguna í fyrravetur.


Tengdar fréttir

Bein útsending: Drekar og dýflissur

Í dag klukkan 14 fá þeir sem hafa gaman af spilum eitthvað fyrir sinn snúð því leikarar í Borgarleikhúsinu ætla að spila saman hlutverkaspilið Dungeons and Dragons, eða Drekar og dýflissur.

Bein útsending: Tónleikar með Bubba

Borgarleikhúsið býður upp á tónleika með Bubba Morthens klukkan 12 í dag og alla föstudaga á meðan á samkomubanni stendur.

Hótel Volkswagen

Borgarleikhúsið sýndi leiklestur á leikriti Jóns Gnarr, Hotel Volkswagen, í beinni útsendingu í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.