Menning

Þjóðleikhúsið leitar að börnum til að leika í Ronju ræningjadóttur

Kjartan Kjartansson skrifar
Salka Sól fer með aðalhlutverkið í fyrirhugaðri uppsetningu á Ronju ræningjadóttur.
Salka Sól fer með aðalhlutverkið í fyrirhugaðri uppsetningu á Ronju ræningjadóttur. Vísir/Ernir
Skráning fyrir áheyrnarprufur fyrir hlutverk í uppsetningu Þjóðleikhússins á Ronju ræningjadóttur standa nú yfir. Leikhúsið leitar að börnum á aldrinum tíu til fimmtán ára til leika með Sölku Sól sem fer með aðalhlutverkið. Skráningafrestur rennur út á þriðjudag.

Selma Björnsdóttir leikstýrir verkinu en til stendur að frumsýna það á Stóra sviðinu í haust. Skráning í áheyrnarprufurnar fer fram á vefsíðu Þjóðleikhússins. Gert er ráð fyrir að prufurnar fari fram sunnudaginn 8. apríl.

Þegar greint var frá því að Salka Sól myndi túlka ræningjadótturina sjálfa í janúar skrifaði söngkonan að það hefði verið draumur hennar að leika Ronju frá því að hún var lítil stelpa.

„Ég reyndi að hlaupa upp á svið þegar ég var 5 ára til að vera með í gleðskapnum upp á sviði og nú tæplega 25 árum síðar er mér boðið í sama gleðskap,“ skrifaði Salka Sól á Facebook-síðu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.