Innlent

Svona var 50. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þríeykið verður á sínum stað í dag.
Þríeykið verður á sínum stað í dag. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í dag í Skógarhlíð 14.

Þríeykið svokallaða, þau Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Alma D. Möller, landlæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.

Gestir fundarins verða Páll Matthíasson forstjóri Landspítala og Hjörtur Kristjánsson framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands en hann starfar í Vestmannaeyjum.

Hér fyrir neðan má sjá beina útsendingu frá fundinum sem og textalýsingu. Þá er fundurinn sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi í kerfum Vodafone og Símans.

Uppfært: Hér að neðan má sjá upptöku frá fundinum í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×