Mannfall í skotbardaga á milli bandarískra og afganskra hermanna Samúel Karl Ólason skrifar 8. febrúar 2020 22:59 Afganskir sérsveitarmenn við útskriftarathöfn. AP/Rahmat Gul
Nokkrir bandarískir hermenn eru sagðir látnir eftir skotbardaga í Afganistan í kvöld. Enn er óljóst hvað gerðist en skotbardaginn var á milli bandarískra hermanna og afganskra. Einn heimildarmaður AFP fréttaveitunnar sagði afganskan hermann hafa skotið á bandaríska hermenn án fyrirvara. Annar segir deilur hafa leitt til skotbardaga. Bardaginn átti sér stað þar sem bandarískir sérsveitarmenn voru að aðstoða afganska sérsveitarmenn. New York Times hefur eftir afgönskum embættismönnum að fimm eða sex bandarískir hermenn hafi fallið og sex afganskir hermenn. Það er þekkt að vígamenn Talibana eiga það til að dulbúa sig sem afganska hermenn og gera þannig árásir á hermenn annarra ríkja í Afganistan. Sömuleiðis hafa afganskir hermenn sem eru hliðhollir Talibönum skotið á aðra hermenn. Um tíma voru árásir sem þessar svo tíðar að yfirmenn herafla Bandaríkjanna í Afganistan óttuðust vantraustið sem var að myndast á milli bandarískra hermanna og hermanna frá Afganistan. Sjá einnig: Bandarískur hershöfðingi lifði af morðtilraun í Afganistan Bandaríkin eru með um þrettán þúsund hermenn í Afganistan og standa yfir viðræður á milli Bandaríkjanna og Talibana um hugsanlegan friðarsáttmála. Talibanar stjórna í raun stórum hluta Afganistan og hefur yfirráðasvæði þeirra ekki verið stærra frá því Bandaríkin gerðu innrás árið 2001.
Afganistan Bandaríkin Mest lesið Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira