Fótbolti

Aron maður leiksins er Al Arabi vann í vítaspyrnukeppni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron Einar í leik fyrr á leiktíðinni í Katar.
Aron Einar í leik fyrr á leiktíðinni í Katar. GETTY/SIMON HOLMES

Aron Einar Gunnarsson var valinn maður leiksins hjá Al Arabi er liðið hafði betur gegn Al-Khor í Amir-bikarnum.

Al Arabi var 2-0 undir í hálfleik en endurkoma í síðari hálfleik tryggði þeim vítaspyrnukeppni. Lokatölur 2-2 eftir venjulegan leiktíma.

Í vítaspyrnukeppninni höfðu lærisveinar Heimis Hallgrímssonar betur, 4-3, og eru því komnir áfram í 16-liða úrslit Amir-bikarsins.

Aron Einar skoraði úr sigurvítaspyrnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×