Lífið

Tungutaktar Shakira brandaramatur fyrir tístara

Stefán Árni Pálsson skrifar
Shakira fór á kostum á sviðinu í hálfleik í gær.
Shakira fór á kostum á sviðinu í hálfleik í gær.

Söngkonurnar Shakira og Jennifer Lopez héldu uppi stuðinu í hálfleikssýningu Ofurskálarinnar í Miami í Flórída í gærkvöldi.

Kansas City Chiefs fagnaði sínum fyrsta NFL-titli í hálfa öld í nótt þegar liðið vann 31-20 sigur á San Francisco 49ers Ofurskálinni. Það er þó ekki aðeins fótboltinn sem fangar áhuga áhorfenda; hálfleikssýningin er iðulega einn af hápunktunum í bandarísku sjónvarpi á ári hverju.

Stórstjörnur á borð við Lady Gaga, Justin Timberlake og Maroon 5 hafa átt sviðið undanfarin ár en nú var komið að áðurnefndum dívum.

Shakira þótti standa sig vel á sviðinu en eitt af því sem vakti sérstaka athygli var augnablik þegar söngkonan lét tunguna dansa á sviðinu, og það alveg upp við myndavélina.

Fljótalega fóru tístarar að gera sér mat úr atvikinu og má sjá nokkur vel valin tíst þar sem fólk slær á létta strengi. Hér að neðan má einnig sjá hálfleikssýninguna í heild sinni.


Tengdar fréttir

Tíu bestu Super Bowl auglýsingarnar

Kansas City Chiefs fagnaði sínum fyrsta NFL-titli í hálfa öld í nótt þegar liðið vann 31-20 sigur á San Francisco 49ers í Super Bowl í Miami.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.