Lífið

Nýjast í New York: Bókin vinsæll aukahlutur fyrir karlmenn

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Bækurnar eru orðnar að vinsælum fylgihlut.
Bækurnar eru orðnar að vinsælum fylgihlut.
Sérstök Instagram-síða hefur verið stofnuð til þess að fanga nýtt „trend“ í New York; karlmenn sem eru að lesa í lestum. Bókin þykir nú vera flottur aukahlutur til þess að fullkomna tiltekið „lúkk“.

Instagram-síðan ber titilinn HotDudesReading og slagorð síðunnar:

„Good looks. Good Books." Sem á íslensku mætti kalla: „Góð skræða lætur lúkkið flæða." [Þýðingin er sett inn sem grín, en blaðamaður tekur við hnyttnum ábendingum um betri þýðingu í athugasemdakerfinu hér að neðan].

Alls eru 110 þúsund manns sem fylgja þessari Instagram-síðu og má sjá nokkrar myndir sem þar birtast, hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×