Lífið

Engar áhyggjur af aukakílóunum: Hægt að sniffa súkkulaði

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Persoone hefur selt yfir 25 þúsund tæki sem hjálpa fólki að sniffa súkkulaði.
Persoone hefur selt yfir 25 þúsund tæki sem hjálpa fólki að sniffa súkkulaði.
Belgískur súkkulaðiframleiðandi hefur fundið upp nýstárlega leið til þess að njóta súkkulaðis án þess að þurfa að hugsa um aukakílóin.

Domique Persoone selur viðskiptavinum sínum tól til þess að sniffa súkkulaði og hefur þessi aðferð slegið í gegn.

Reuters greinir frá.

Persoone hefur selt yfir 25 þúsund tæki sem nota má til að skjóta súkkulaðidufti upp í nef manns. Persoone selur einnig sérstakt duft og sem er blanda af kókó, engiferi og mintu sem Persoone segir að opni upp lyktarskynið og leyfi manni að njóta sérstakrar „súkkulaðitilfinningar“ í um fimmtán mínútur.

Hann segir að erfitt hafi verið að finna réttu blönduna fyrir duftið. Í fyrstu reyndi Persoone að hafa duftið einungis úr kókói en hann sagði það hafa verið of þurrt. Síðan prófaði hann að blanda chilli við kókóið sem Persoone þótti vera alltof sterkt. En að lokum datt hann inn á þessa töfrauppskrift sína sem hann segir veita mikla vellíðan.

Sjá einnig: „In love við the Kókó“: Björn Bragi hannar nýja auglýsingu

„Ég er samt ekki slæmi strákurinn sem hvetur fólk til eiturlyfjanotkunar," segir Persoone og bætir við: „Lífið er leiðinlegt, reynum að skemmta okkur aðeins."

Hugmyndin að þessari uppfinningu varð til árið 2007 þegar Persoone bjó til frumgerðina af tækinu fyrir hljómsveitina Rolling Stones, sem notuðu hana í partýi.

Persoone er þekktur fyrir að fara nýjar leiðir í súkkulaðigerð og hefur meðal annars þróað súkkulaði með beikonbitum, lauksúkkulaði, súkkulaði með ostrum auk þess sem hann hefur búið til súkkulaði blandað saman við gras.

Ef Persoone ákveður að herja á Íslandsmarkað væri væntanlega tilvalið að nota lag rapparans O.T. Genasis, sem ber titilinn I'm in love with the Coco, sem má hlusta á hér neðst.

Hér að neðan má aukinheldur horfa á sjónvarpsfrétt frá International Business Times um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×