Ríkið gefur 150 milljónir 7. janúar 2005 00:01
Miðað við höfðatölu hefur hver Íslendingur gefið átta hundruð og tuttugu krónur til að lina þjáningar bágstaddra eftir hamfarirnar á annan jóladag við Indlandshaf. Heildarupphæð íslenskra framlaga er komin í 240 milljónir króna. Munar þar mestu um framlag ríkisstjórnarinnar, alls 150 milljónir sem samþykkt var á föstudag. Rauði Kross Íslands hefur safnað um áttatíu milljónum króna hjá almenningi og fyrirtækjum. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudag að bæta sex milljónum við þær fimm milljónir sem þegar höfðu verið af hendi raktar í þá söfnun og Reykjavíkurborg lagði til tíu milljónir. Hjálparstarf kirkjunnar hefur safnað hálfri fimmtu milljón, SOS barnahjálp einni milljón og Barnavernd hálfri. tveimur milljónum. Samtals eru því framlög hjálparstofnana og ríkissjóðs á Íslandi 240 milljónir króna. Ef litið er til Norðurlanda hafa Íslendingar látið minna af hendi rakna en Norðurlandaþjóðirnar að Svíum undanskildum. Norðmenn eru gjafmildastir með rúmlega 2500 krónur á mann og eru næst rausnarlegasta þjóð heims á eftir Áströlum. Framlög okkar eru heldur lægri miðað við höfðatölu en Íslendingar látið af hendi rakna minna fé en Dana og Finna, um það bil 1.000 krónur á mann, en talsvert meira en Svíar með 500 krónur á mann. Athygli vekur að auðugasta ríki heims, Bandaríkin er neðst á lista með aðeins 72 krónur á mann. Aðeins Frakkar láta minna af hendi rakna miðað við höfðatölu eða 57 krónur. Reyndar versnar enn samanburðurinn ef tillit er tekið til þess að Evrópusambandið greiðir rúma 38 milljarðar króna til neyðaraðstoðar og uppbyggingar á hamfarasvæðunum. Vonir standa til að framlög Íslands eigi eftir að hækka umtalsvert. Elín Þ. Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri söfnunarinnar "Neyðarhjálp úr norði" segir að ekki sé stefnt að því að ná neinni ákveðinni fjárhæð inn í söfnuninni en vonir standi til að góður árangur náist enda ætli öll hjálparsamtök að leggjast á eitt. Söfnunin nær hámarki með beinum útsendingum allra sjónvarpsstöðva laugardagskvöldið 15. janúar.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Áslaug Arna og Guðrún tókust á í Pallborðinu Innlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Fleiri fréttir Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Sakaður um að þiggja mútur fyrir að tala máli Rússa á Evrópuþinginu Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Sjá meira