Fjölmiðlar í Bretlandi og Bandaríkjunum bíða eftir yfirlýsingu frá íslensku söngkonunni Björk Guðmundsdóttur og Lady Gaga vegna sviplegs fráfalls breska hönnuðarins Alexanders McQueen. Lady Gaga var einn nánasti viðskiptavinur McQueens og hafa heimildarmenn innan herbúða hennar látið hafa eftir sér að hún sé einfaldlega í of mikilli sorg til að geta tjáð sig um andlát McQeens. Heimildir Fréttablaðsins segja að Björk sé á fullu að semja nýtt efni og lokuð inni í hljóðveri. Og því hefur það reynst erfitt að ná tali af henni.

Blaðamaður New York Post segir að einn af hápunktum ferils McQueens hafi án nokkurs vafa verið Fashion Rocks-sýningin árið 2003 í Royal Albert Hall þar sem Björk söng lag sitt Bachelorette og fyrirsætur sýndu nýjustu línu hönnuðarins.
MTV birti síðan í gær sérstaka grein tileinkaða samstarfi Bjarkar og Alexanders McQueen en þar er því haldið fram að hönnunin á Homogenic sé eitt af mestu verkum hönnuðarins. Blaðamaður Wall Street Journal segir að vissulega sé Lady Gaga hálfgerður opinber talsmaður Alexanders í dag en það hafi verið Björk sem ruddi veginn.
Blaðamaðurinn gerir sérstaklega mikið úr myndbandinu Alarm Call sem McQueen leikstýrði eftir samnefndu lagi en þar klæddist Björk einmitt kjól frá Bretanum sem seldur var á uppboði hér árið 2008.