Mikill viðbúnaður vegna skútu sem strandaði við Lundey Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. febrúar 2020 22:48 Opal kemur til hafnar í kvöld. vísir/jói
Björgunarsveitir, þyrla Landhelgisgæslunnar og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kölluð út klukkan 22:18 í kvöld vegna skútunnar Opal sem strandaði með 18 manns innanborðs við Lundey á Kollafirði. Mikill viðbúnaður var vegna málsins samkvæmt upplýsingum frá slökkvilðinu; bátar og kafarar sendir á staðinn sem og sjóbjörgunarsveitir. Þá var þyrla Gæslunnar kölluð út á hæsta forgangi. Virkja átti samhæfingarmiðstöð almannavarna vegna málsins en áhöfninni tókst að losa Opal af strandstað um 25 mínútum eftir að útkallið barst. Þá voru viðbragðsaðilar sem kallaðir höfðu verið út afturkallaðir. Enginn leki hafði komið að bátnum og gat hann siglt til hafnar fyrir eigin vélarafli en í fylgd með hafnsögubátnum Jötni. Opal kom til hafnar á Miðbakkanum í Reykjavík skömmu fyrir klukkan hálftólf í fylgd björgunarsveita og tók lögregla á móti skipverjum og farþegum í landi. Skútan kom til hafnar í Reykjavík skömmu fyrir hálftólf í kvöld.vísir/jói Fréttin var uppfærð kl. 23:31. Fyrst er útkallið barst var mikill viðbúnaður en eftir að áhöfninni tókst að losa skútuna var viðbragðið afturkallað.vísir/jói Alls voru 18 manns um borð í bátnum.vísir/jói k.
Björgunarsveitir Landhelgisgæslan Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Atburðarás gærdagsins í myndum Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Fleiri fréttir „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Sjá meira