Tónlist

Emilía hætt í Nylon

Emilía Björk Gekk að eiga unnusta sinn, Pálma Sigurðsson, um helgina og hefur ákveðið að hætta í Nylon.
Emilía Björk Gekk að eiga unnusta sinn, Pálma Sigurðsson, um helgina og hefur ákveðið að hætta í Nylon.

Emilía Björg Óskarsdóttir hefur ákveðið að segja skilið við Nylon-flokkinn eftir þriggja ára samstarf. Brotthvarf Emilíu var ákveðið fyrir nokkru en var haldið leyndu af tillitsemi við fyrirætlað brúðkaup hennar nú um helgina.

Fréttablaðið hafði meðal annars samband við söngkonuna fyrir nokkrum vikum en þá neitaði hún þessu staðfastlega. Einar Bárðarson, umboðsmaður sveitarinnar, upplýsti hins vegar að þetta hefði verið frágengið þá en ákveðið hefði verið að láta ákvörðunina ekki skyggja á sjálfan brúðkaupsdaginn.



Til stendur að finna staðgengil fyrir Emilíu og er ráðgert að áheyrnarprufur hefjist í ágúst. Þá hefur verið samið við Saga Film um gerð sjónvarpsþátta um leitina og hvernig nýjum meðlimi reiðir af í hinni sívinsælu stúlknasveit. Verða þættirnir sýndir á Stöð 2 og Sirkus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.