Innlent

Engin framsalskrafa komin fram

Ekki hefur enn komið fram framsalskrafa á albanskan karlmann sem kom hingað til lands á fölsuðum skilríkjum og er grunaður um morð í Grikklandi. Maðurinn kom hingað til lands hinn 20. september og hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi hér á landi. Við komuna framvísaði hann vegabréfi sem reyndist vera falsað. Hann óskaði þá eftir hæli á Íslandi og eftir að hælismeðferð lauk var maðurinn ákærður fyrir skjalafals. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi manninn í 45 daga fangelsi. Ekki hefður enn komið fram framsalskrafa á manninn frá grískum stjórnvöldum. Leiða má að því líkur að manninum verði vísað úr landi þegar hann líkur afplánun sinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×