Ómar Sævarsson í Grindavík 11. maí 2009 13:56 Mynd/Valli
Miðherjinn Ómar Sævarsson sem leikið hefur með ÍR undanfarin ár hefur samþykkt að ganga í raðir Grindavíkur. "Það voru nokkur lið búin að hafa samband við mig og út frá því fór ég að hugsa um það hvort ég ætti að kýla á þetta. Mér þótti það spennandi verkefni að fara til Grindavíkur og reyna að vinna alla titla sem í boði eru. Ég held að það hljóti að vera takmarkið," sagði Ómar í samtali við Vísi. Ómar skoraði 12,6 stig að meðaltali í leik í vetur sem leið og var þriðji frákastahæsti leikmaður Iceland Express deildarinnar með 11,5 fráköst að meðaltali í leik og varði auk þess um tvö skot að meðaltali í leik. Hann vonast til að passa vel inn í leik Grindavíkur. "Ég er sæmilega léttur á fæti og ég þarf örugglega ekki að gera mikið af því að skora. Mitt hlutverk verður væntanlega að hirða fráköst og verja skot," sagði Ómar. Ómar afrekaði að m.a. hirða 27 fráköst í einum og sama leiknum gegn Njarðvík í október í fyrra. Hann spilaði með Breiðablik leiktíðina 2001-02 en hefur allar götur síðan spilað með ÍR. "Ég er auðvitað ÍR-ingur og ekkert annað og það er erfitt að fara úr Breiðholtinu. Þetta er fólk sem maður er búinn að vera í kring um síðan maður var níu ára. Ég held samt að allir hafi gott af smá breytingu," sagði Ómar. Hjá Grindavík fær Ómar það verkefni að fylla skarð Páls Kristinssonar, en hann hefur gefið það út að líklega muni hann hætta í körfubolta. Þó þykir ekki ólíklegt að Páll fari aftur að spila með Njarðvíkurliðinu þar sem hann var áður en hann skipti yfir til Grindavíkur. "Ég fæ líklega það verkefni að fylla skarð Páls og það verður ekki auðvelt. Mér hefur alltaf fundist Páll vera vanmetinn leikmaður," sagði Ómar.
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira