Lífið

Kenneth Máni heimsótti Litla Hraun

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Kenneth Máni, sem er karakter í samnefndri sýningu í Borgarleikhúsinu, mætti á Litla-Hraun í síðustu viku og skemmti kollegum sínum við mikil fagnaðarlæti.

Kenneth Máni er leikinn af Birni Thors en karakterinn er úr þáttunum Fangavaktinni sem gerðust á Litla-Hrauni þannig að segja má að Kenneth hafi farið á heimaslóðir.

Hann lét sér þó ekki nægja að skemmta föngum, því nokkrum dögum síðar mætti hann á árshátíð lögreglumanna og vakti mikla lukku þar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×