Menning

Skaðsöm heimildarmynd

McDonalds auglýsir grimmt til að vega upp á móti skaðsemi heimildamyndarinnar Super Size Me. Í henni er fylgst með kvikmyndaframleiðandanum Morgan Spurlock sem borðaði allar sínar máltíðir í 30 daga á McDonalds. Ekki hafði það athæfi góðar afleiðingar, Morgan þyngdist um 13 kíló, kynhvötin minnkaði, kólesterólið hækkaði og þar fram eftir götunum. Myndin, sem er áströlsk, hefur algjörlega slegið í gegn í Ástralíu og McDonalds því skellt á mikilli auglýsingaherferð.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.