Golf

Naumur sigur Tiger Woods

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods fagnar á mótinu í gær.
Tiger Woods fagnar á mótinu í gær. Nordic Photos / Getty Images

Tiger Woods vann nauman sigur á JB Holmes í fyrstu umferð heimsmeistarakeppninnar í holukeppni sem fer fram þessa dagana í Arizona í Bandaríkjunum.

Tiger var þremur vinningum undir þegar fimm holur voru eftir enn náði að innbyrða sigur með því að ná þremur fuglum og einum erni á síðustu holunum.

Holmes náði svo ekki að setja niður pútt fyrir fugli á síðustu holunni sem gerði það að verkum að Tiger vann viðureignina með einum vinningi.

Ernie Els frá Suður-Afríku datt hins vegar úr leik er hann tapaði fyrir Jonathan Byrd frá Bandaríkjunum sem var með sex vinninga forskot er fimm holur voru eftir.

Keppni á öðrum keppnisdegi hefst í dag og mætast þá eftirtaldir kylfingar:

Adam Skotlandtt (Ástralía) - Woody Ástralíatin (Bandaríkin)

Sergio Garcia (Spánn) - Boo Weekley (Bandaríkin)

Colin Montgomerie (Skotland) - Charles Howell (Bandaríkin)

Padraig Harrington (Írland) - Stewart Cink (Bandaríkin)

Bradley Dredge (Wales) - Paul Casey (England)

KJ Choi (Suður-Kórea) - Ian Poulter (England)

Rod Pampling (Ástralía) - Nick O'Hern (Ástralía)

Vijay Singh (Fidjí-eyjar) - Niclas Fasth (Svíþjóð)

Jonathan Byrd (Bandaríkin) - Andres Romero (Argentína)

Henrik Stenson (Svíþjóð) - Trevor Immelman (Suður-Afríka)

Phil Mickelson (Bandaríkin) - Stuart Appleby (Ástralía)

Justin Leonard (Bandaríkin) - Lee Westwood (England)

Steve Stricker (Bandaríkin) - Hunter Mahan (Bandaríkin)

Angel Cabrera (Argentína) - Luke Donald (England)

Tiger Woods (Bandaríkin) - Arron Oberholser (Bandaríkin)

David Toms (Bandaríkin) - Aaron Baddeley (Ástralía)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×