Innlent

Ögmundur vill skoða niðurstöðuna betur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ögmundur Jónasson var óánægður með fyrri samning um Icesave. Mynd/ Anton.
Ögmundur Jónasson var óánægður með fyrri samning um Icesave. Mynd/ Anton.
„Áður en við gleypum þetta og samþykkjum, þá þurfum við að skoða niðurstöðuna vel. En þetta er mikill og góður árangur og mjög langt frá þeirri niðurstöðu sem við stóðum frammi fyrir," segir Ögmundur Jónasson, ráðherra og þingmaður VG, um nýjan Icesave samning. Ögmundur var einn þeirra stjórnarþingmanna sem lagðist gegn Icesavesamningunum fyrir rúmu ári síðan og galt fyrir það með ráðherraembætti sínu.

„Ég gekk út úr ríkisstjórn vegna þess að mér var sagt að ef ég ekki samþykkti þá niðurstöðu sem fyrir lá haustið 2009 myndi stjórnin springa og hún myndi fara frá. Ég hafði engan áhuga á því að sprengja ríkisstjórnina en ekki heldur vildi ég gefa mig í þessu máli," segir Ögmundur í samtali við Vísi. Hann telur að það hafi komið á daginn, það sem hann taldi þá, að hægt væri að fá betri niðurstöðu en þá var talið. „Þetta er ævintýralega miklu betri niðurstaða en sú sem að við stóðum frammi fyrir haustið 2009 og sem þjóðin síðan hafnaði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Því er ekkert saman að jafna og munar gríðarlegum upphæðum," segir Ögmundur.

Ögmundur segir að þetta skipti ekki bara máli fyrir framtíð þjóðarbúsins heldur velferðarsamfélags á Íslandi. „Ég hef oft furðað mig á því hvað margir virðast glámskyggnir á það sem mér hefur allavega þótt vera augljóst, að þessar upphæðir telja allar. Þetta eru alvöru krónur og aurar og þegar að þær eru teknar frá okkur að þá þýða þær niðurskurð í velferðarþjónustu og menntastofnunum. Þar á meðal er Háskóli Íslands sem á ýmsa fræðimenn sem hafa gert lítið úr þessum skuldbindingum, segir Ögmundur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×