Viðskipti innlent

305 samningar um fasteignakaup

Nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu.
Nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu.

305 samningum um fasteignakaup var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu frá 29. júní til gærdagsins. Veltan nam 8.224 milljónum og meðalupphæð á samning nam 27 milljónum króna. Á sama tíma var 20 samningum þinglýst á Akureyri en 11 á Árborgarsvæðinu. Meðalupphæð samnings á Akureyri nam 18,8 milljónum króna en á Árborgarsvæðinu 26,3 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins.

Á höfuðborgarsvæðinu voru gerðir 248 samningar um eignir í fjölbýli, 40 samningar um sérbýli og 17 samningar um annars konar eignir.

Á Akureyri voru 14 samningum þinglýst um eignir í fjölbýli, 4 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 376 milljónir króna.

Á sama tíma var 11 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 289 milljónir króna, samkvæmt Fasteignamati ríkisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×