Sýknudómur Héraðsdóms skelfilegt afturhvarf til fortíðar 6. júlí 2007 19:05
Atli Gíslason lögmaður segir sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir nauðgun á Hótel Sögu,skelfilegt afturhvarf til fortíðar. Dómurinn noti viðbrögð stúlkunnar við meintri nauðgun gegn henni. Ekki hefur verið ákveðið hvort málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær tvítugan Pólverja sem ákærður var fyrir nauðgun inn á salerni Hótel Sögu í mars síðastliðnum. Dómurinn taldi ljóst að samræðið hefði átt sér stað en ákærða hefði ekki verið gert ljóst að samræðið væri gegn vilja stúlkunnar. Margrét Gunnlaugsdóttir réttargæslumaður stúlkunnar er ósammála niðurstöðu dómsins og segir verknaðinn liggja fyrir en hann teljist ekki ofbeldi í skilningi hegningarlaganna. Atli Gíslason lögmaður og þingmaður vinstri grænna segir dóminn skólabókardæmi um hvernig ekki eigi að dæma í nauðgunarmálum. Hann segir viðbrögð stúlkunnar eðlileg miðað við aðstæður og telur brýnt að dómararar hætti að horfa einungis á verknaðarlýsingu heldur líti til andlegra afleiðinga nauðgana. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður ákærða segir niðurstöðu dómsins hafa verið rétta miðað við þá sönnunarfærslu sem farið hefði fram í málinu. Komið hafi mjög skýrt fram við flutning málsins þegar stúlkan hafi verið spurð hvort hún hefði með orði eða látæði gefið til kynna að hún vildi ekki hafa mök við manninn. Hún hafi sagt nei og bar því við að hafa frosið og ekkert getað aðhafst. Um leið og hún hafi fundið til sársauka hafi hún ýtt manninum frá sér og hann hætt samstundis. Þessi frásögn væri einnig í samræmi við framburð mannsins.
Mest lesið Rannsókn lokið og nefndin einróma Innlent Brynjar Níelsson talinn hæfastur til að verða dómari Innlent Hyggst hækka tolla á Evrópuríkin innan tíðar Erlent Verkföll eru skollin á í þrettán sveitarfélögum Innlent Beyoncé loksins verðlaunuð fyrir bestu plötuna Lífið Nýr golfvöllur verði útivistarparadís fyrir Hafnfirðinga Innlent Gengur í sunnanstorm og leiðindaveður um allt land Veður Ferðalangar taki mið af hríð og hvössum vindum Veður Fundi slitið og verkföll hefjast á morgun Innlent Segir úlfalda gerðan úr mýflugu Innlent Fleiri fréttir Kynna fyrstu verk ríkisstjórnar á blaðamannafundi Rannsókn lokið og nefndin einróma Brynjar Níelsson talinn hæfastur til að verða dómari Ekki vanhæfur til að leiða nefnd heldur til að fjalla um strandveiðar Verkföll eru skollin á í þrettán sveitarfélögum Nýr golfvöllur verði útivistarparadís fyrir Hafnfirðinga Fundi slitið og verkföll hefjast á morgun Segir úlfalda gerðan úr mýflugu Rof á þjónustu við fatlaða opinberi slæma forgangsröðun stjórnvalda Góð samskipti við Bandaríkin gríðarlega mikilvæg 100 gráðu heitt vatn fannst í Reykholti í Bláskógabyggð „Þetta kemur auðvitað bara mjög illa við fjölskyldulífið“ Tollastríð, kennaraverkfall og hamborgarar Grunur um matarborna sýkingu á þorrablóti Vont veður geti stytt tíma til rýmingar Óbreytt staða í Karphúsinu Hættir sem formaður Siðmenntar Sakar Helgu um „helvítis lygar“ Um 500 nýjar íbúðir byggðar í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Grænlendingar í sókn frekar en vörn þökk sé Trump Þung staða og „ekki hægt að útiloka“ verkföll í fyrramálið Hvað þýðir tollastríð Trumps fyrir Ísland? Hagræðingartillögur, styrkir til flokkanna og Grænland á Sprengisandi Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Ógnaði fólki með barefli í bænum Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Klakastykki stórskemmdi bíl Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Sjá meira