Innlent

Súrrealískt ástand

Ástandið í Fjarðabyggð er óvenjulegt og að mörgu leyti súrrealískt. Aldrei fyrr hefur önnur eins uppbygging og framkvæmdir átt sér stað í Íslandssögunni og óvíst er hvort þetta endurtaki sig nokkurn tímann. Uppi á Kárahnjúkum er bygging stíflunnar í fullum gangi og niðri á Reyðarfirði eru framkvæmdir af margvíslegum toga. Og samt eru framkvæmdirnar við sjálft álverið bara rétt að hefjast. Meginþunginn verður í lok þessa árs og byrjun næsta og þá verða starfsmennirnir líka flestir. Það er ekki bara verið að byggja stærsta álver Íslands, höfn í Reyðarfirði og jarðgöng til Fáskrúðsfjarðar heldur er líka risin ný verslunarmiðstöð með úrvali verslana við hafnarsvæðið á Reyðarfirði; Krónan er komin inn á matvörumarkaðinn, veiðibúðin hefur flutt sig um set inn í verslunarmiðstöðina og tískuverslunin Pex hefur verið opnuð en hún er systurverslun tískuverslunar í Neskaupstað. Til viðbótar verða Lyfja og ÁTVR í Molanum auk þess sem bæjarskrifstofurnar flytja þangað líka. @.mfyr:Pólverjarnir koma bráðum @megin:Starfsmannaþorpið á Haga, sem dags daglega gengur undir heitinu FTV eða Fjardaál Team Village, er að rísa og hefur risið í grennd við Reyðarfjörð. Þar búa nú tæplega 300 starfsmenn, þar af eru um 80-90 prósent Íslendingar. Á næstu vikum og mánuðum fjölgar starfsmönnunum verulega og koma þá til landsins pólskir byggingamenn. Í allt er talið að starfsmennirnir verði um 800 í lok ársins og að fjöldinn nái hámarki sínu á næsta ári, fari upp í 1.500-1.800 starfsmenn. Framkvæmdirnar við álverið ganga vel og samkvæmt áætlun. Jarðvinnan er í fullum gangi, hönnun sömuleiðis og verið er að setja upp undirstöðurnar fyrir álverið áður en bygging kerskálanna hefst. Þeir eru tveir, rúmlega tveggja kílómetra langir en í allt eru byggingarnar 95 þúsund fermetrar undir þaki. Hönnun og byggingaframkvæmdir haldast nánast í hendur en hönnuðirnir eru aðeins á undan framkvæmdaliðinu í sinni vinnu. Á Reyðarfirði er allt fullt af fólki, bæði innlendu og erlendu og peningarnir flæða inn í þjóðfélagið. Eftirspurn er svo mikil eftir fasteignum til kaups eða leigu að fasteignaverð hefur hækkað um 100 prósent á tveimur árum og fasteignagjöldin í samræmi við það. Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri segir að margir íbúanna hafi ekki látið í ljós mikla hrifningu með það en við því sé ekkert að gera, sérstaklega kannast hann við gagnrýni frá eldra fólki en bendir á að nú geti menn keypt og selt fasteignir sínar sem ekki hafi verið hægt áður. @.mfyr:Álverið ekki draumavinnustaðurinn @megin:Þegar rætt er við íbúana kemur í ljós að flestir þeirra fagna framkvæmdunum. Gagnrýnisraddirnar fara ekki hátt en vafalaust eru þær þó fyrir hendi. Ungviðið sér til dæmis ekki endilega álverið sem sinn draumavinnustað. Þrátt fyrir allt. Anna Steinunn Baldvinsdóttir, 15 ára, er ein þeirra. Hún segir að framkvæmdirnar séu fínar en telur að það sé örugglega ekki gaman að vinna í álverinu. Hún fagnar hinsvegar nýju verslunarmiðstöðinni og segir það mikinn kost að þurfa ekki að fara til Egilsstaða til að kaupa sér tískufatnað. Anna Steinunn ætlar að verða hárgreiðslukona þegar hún er orðin stór. Vinkona hennar, Guðrún Erla Víðisdóttir, sem einnig er 15 ára, telur hinsvegar vel koma til greina að vinna í álverinu þegar hún verður eldri. Straumurinn af aðfluttu vinnuafli hjá Bechtel og öðrum verktökum á svæðinu er frekar einlitur. Þetta virðast fyrst og fremst vera einhleypir karlmenn aðallega í yngri kantinum þó að auðvitað sé eitthvað af konum sem koma að framkvæmdunum og þá kannski fyrst og fremst á aðalskrifstofunni. Sérstaklega er það meðal erlendu starfsmannanna hjá hinu alþjóðlega verktakafyrirtæki Bechtel. @.mfyr:Afþreyingastjóri sér um skemmtunina @megin:Starfsmennirnir láta vel af aðstöðunni á svæðinu enda er þarna allt til alls. Ráðinn hefur verið afþreyingastjóri, Guðmundur Gíslason bæjarfulltrúi, og sér hann til þess að fjölbreytt afþreying sé fyrir hendi. Mötuneytið er stórt, bjart og snyrtilegt og maturinn lítur vel út. Matseðillinn er fjölbreyttur og ætti hver að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það er fiskur eða kjöt, pasta eða salat. Og eftirréttirnir eru ekkert slor. Vel er búið að þeim sem búa í starfsmannaþorpinu. Þar verða nokkrar afþreyingamiðstöðvar, ein á hverja 200 íbúa, setustofur í hverjum skála, góðar sjónvarpsstofur með fjölbreyttu sjónvarpsefni, bar og skemmtistaður og lítil verslun. Munurinn á starfsmannaþorpinu við Reyðarfjörð og starfsmannabúðunum við Kárahnjúka og Egilsstaðir er kannski sá að stefnt er að því að vinna alla uppbyggingu á Reyðarfirði í takt við það samfélag sem fyrir er. Þannig verður lítið úrval í versluninni, rétt brýnustu nauðsynjar, því að ætlast er til að starfsmennirnir sæki sem mesta þjónustu inn á Reyðarfjörð. Starfsmennirnir ættu því að blandast nokkuð vel því samfélagi sem fyrir er. Ekki verður betur séð annað en að starfsmenn Bechtel séu ánægðir með aðstöðuna og kostinn. Óvenjumiklar öryggisráðstafanir eru hjá Fjarðaáli og Bechtel. Óviðkomandi fá hvorki að fara um framkvæmdasvæðið né starfsmannaþorpið án leyfis og í fylgd stjórnenda sem er afar óvenjulegt á Íslandi þar sem menn eru vanir að geta farið um frjálsir og að vild. Gestir sem heimsækja álversstæðið og starfsmannaþorpið fá öryggisbúnað, passa, hjálm, öryggisskó með stáltá og gult vesti og eru svo lóðsaðir um. @.mfyr:Allt gert fyrir starfsfólkið @megin:Húsin í starfsmannaþorpinu eru innflutt frá Ungverjalandi, mjög sterkleg, snyrtileg og góð hús sem henta vel íslenskum aðstæðum. Þar er ljóst að ekki er tjaldað til einnar nætur, Bechtel ætlar sér ekki að þurfa að bæta húsin eða breyta þeim þegar reynsla er komin á starfsemina eins og gerst hefur á Kárahnjúkum. Þremenningarnir Ísak Þór Davíðsson frá Reykjavík, Sigurður Jón Björgvinsson og Davíð Þórólfsson frá Húsavík vinna við álversbygginguna á vegum Kollufells, dótturfyrirtækis Ístaks og ÍAV. Þeir sjá um verkefni af ýmsum toga, rífa innan úr húsum, setja upp húsgögn og einangra pípulagnir svo að dæmi séu nefnd. "Það er mjög góður aðbúnaður og allt gert fyrir starfsfólk sem hægt er að gera," sögðu þeir þar sem þeir voru á leið í mat í matsalnum Golden Duck einn daginn í vikunni. Þeir töldu matinn góðan og ekkert hægt að kvarta undan laununum. Rætt væri um að breyta fyrirkomulaginu þannig að þeir ynnu lengra á daginn níu daga og fengju svo fimm daga frí í stað þess að vinna Tíu daga og fá svo fjögurra daga frí. Allar áletranir í starfsmannaþorpinu eru á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku. @.mfyr:Sjálfsagt að fólk komi heilt heim @megin:Hrönn Pétursdóttir starfsmannastjóri Fjarðaál bendir á að slysatíðni sé talsverð á Íslandi, um einn af hverjum 60 starfsmönnum í framkvæmdum slasist, um einn af hverjum 120 almennt í þjóðfélaginu. Hlutfallið sé allt annað hjá Bechtel og Fjarðaáli, þar sem hlutfallið er einn af um eða yfir 1.000 starfsmönnum. Það sé sjálfsögð krafa að starfsmenn komist heilir heim til sín á kvöldin og því séu strangar öryggiskröfur og kröfur um réttan búnað. Öryggiskröfurnar eru óvenju strangar miðað við það sem gerist og gengur á Íslandi en starfsmenn hafa í langflestum tilfellum vanist þeim vel. Hrönn Pétursdóttir er kynningar- og starfsmannastjóri. Hún fluttist austur í haust þegar hún festi kaup á glænýju húsi á Reyðarfirði. Hrönn leggur áherslu á að Fjarðaál sé mannlegt fyrirtæki sem gott sé að starfa hjá. Íbúarnir á staðnum sé jákvætt, það geri sér grein fyrir því að ástandið nú sé ekki alltaf eðlilegt enda sé "örugglega langt frá því eðlilegt hversu mikil umferð er af trukkum hérna í gegn en ég held að fólk sé ákveðið í því að nýta tækifærin og láta hlutina ganga upp," segir hún. "Þetta verður stöðugt sýnilegra. Maður kemst ekki hjá því að sjá að þetta er alltaf að aukast og á eftir að verða meira." Á næstu vikum verða haldnir kynningarfundir á sex stöðum á landinu fyrir þá sem hafa áhuga á að selja þjónustu og vörur austur og í framhaldi af því verður kannað með væntanlega starfsmenn í álverinu. Hrönn segir að ekki sé hægt að tala um að starfsmennirnir séu ófaglærðir. Þeir hafi mismunandi grunnmenntun en fái þjálfun við hæfi. Þegar hefur verið ráðinn fræðslustjóri hjá Alcoa-Fjarðaáli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×