Skoðun

Rauða krossinn þinn vantar þig

Kristín S. Hjálmtýsdóttir skrifar

Rauði krossinn á Íslandi er grasrótarhreyfing sem er borin upp á sjálfboðaliðum og er sjálfstæð í störfum sínum. Við styðjum stjórnvöld á sviði mannúðar- og neyðarvarnamála og erum með skilgreint hlutverk í almannavörnum á hamfaraeyjunni Íslandi. Og við stöndum vaktina nótt sem nýtan dag fyrir alla landsmenn, á öllum stöðum. En til að tryggja fumlaust starf í þágu samfélagsins vantar okkur aukinn stuðning almennings.

Eins og kunnugt er hafa undanfarnar vikur verið óvenjulegar hér á landi. Lægðir, snjóstormar og snjóflóð, veðurofsi, eldgosahætta og nú undirbúningur ef kórónaveiran nær til landsins. Við þessu öllu og einnig hinu óvænta verða sjálfboðaliðar Rauða krossins sem bera starfið uppi að vera undirbúnir. Það eru mjög annasamar vikur að baki hjá sjálfboðaliðum Rauða krossins, eins og öðrum viðbragðsaðilum, oft í mjög erfiðum aðstæðum þar sem þeir styðja m.a. við fólk á erfiðum stundum í lífi þeirra.

Um 750 manns eru skráðir í neyðarvarnarstörf hjá Rauða krossinum, en alls eru um 3.000 virkir sjálfboðaliðar í um 4.000 fjölbreyttum störfum á hverjum tíma. Mannauðurinn sem Rauði krossinn býr yfir er ómetanlegur en okkur vantar alltaf fleiri sjálfboðaliða.

Ekki eru allir í þeirri aðstöðu að geta gefið af tíma sínum. Rauða krossinn vantar ekki aðeins sjálfboðaliða því félag eins og Rauði krossinn er háð því að almenningur styrki okkur fjárhagslega, við gætum ekki haldið úti okkar mögnuðu starfsemi án Mannvina Rauða krossins. Ein af grundvallarhugsjónum Rauða krossins, sem öll landsfélög um heim allan verða að virða, er sjálfstæði. Rauði krossinn er ekki ríkisstofnun og sjálfstæði okkar er eitt það mikilvægasta í starfseminni. Þeirri mikilvægu hugsjón verður ekki náð án aðkomu Mannvina Rauða krossins.

Mannvinir Rauða krossins styrkja verkefni hér heima og úti í heimi. Neyðarvarnir Rauða krossins væru ekki jafn öflugar og raun ber vitni án aðkomu Mannvina. Sem dæmi hefur neyðarvarnarkerrum fjölgað um landið með nauðsynlegum búnaði vegna tilstilli þeirra, Hjálparsími Rauða krossins 1717 er starfræktur allan sólarhringinn, árið um kring fyrir tilstilli Mannvina.

Þau sem geta veitt okkur aðstoð geta skráð sig sem sjálfboðaliða á raudikrossinn.is og þau sem ekki eiga tíma aflögu geta stutt okkur með því að gerast Mannvinir Rauða krossins á mannvinir.is

Takk kæru sjálfboðaliðar og Mannvinir fyrir ykkar dýrmæta stuðning sem gerir Rauða krossinum kleift að starfa á landsvísu í þágu almennings. Takk þið hin sem sýnið skilning á starfi okkar og hugleiðið að slást í hópinn til að gera Rauða krossinn ykkar enn betri í að kljást við afleiðingar ofsaveðra, snjóflóða og annarrar hættu sem skapast hér á landi.  

Höfundur er framkvæmdastjóri Rauða krossins.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×