Innlent

Áætlanir um að Baugsmál verði tekið fyrir í Hæstarétti í maí

Gestu Jónsson ásamt skjótstæðingi sínum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, við aðalmeðferð í Baugsmálinu í fyrra.
Gestu Jónsson ásamt skjótstæðingi sínum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, við aðalmeðferð í Baugsmálinu í fyrra.

Áætlanir eru um að sá angi Baugsmálsins sem enn er fyrir dómstólum verði tekinn fyrir í Hæstarétti í maí. Ekki er þó búið að festa dagsetningu þar um.

Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir að viðmiðanir séu um að taka málið fyrir í maí. Hann og Jakob Möller, verjandi Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, vinni nú að greinargerð vegna málsins sem skila eigi til Hæstaréttar í byrjun mars. Þá verði formlega tekin ákvörðun um málflutningsdag.

Um er að ræða endurákæru sem settur saksóknari, Sigurður Tómas Magnússon, gaf út eftir að upprunalega Baugsmálinu var öllu vísað frá dómstólum. Alls er um að ræða 18 ákæruliði.

Í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra var Jón Ásgeir Jóhannesson sýknaður af langflestum ákæruliðum en þó dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild að útgáfu tilhæfulauss reiknings upp á 62 milljónir króna sem færður var í bækur Baugs. Þá var Tryggvi Jónsson dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir bókhaldsbrot og fjárdrátt með því að láta Baug greiða persónulegan kostnað sinn.

Enn fremur var Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélagi Baugsmanna, dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aðstoða Jón Ásgeir og Tryggva við að gefa út hinn tilhæfulausa reikning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×