Lífið

Passar sig á stelpunum hér eftir

Ósáttur Ryan Phillipe er ósáttur við umfjöllun fjölmiðla um sambandsslit þeirra Abbie Cornish.
Nordicphotos/getty
Ósáttur Ryan Phillipe er ósáttur við umfjöllun fjölmiðla um sambandsslit þeirra Abbie Cornish. Nordicphotos/getty

Bandaríski leikarinn Ryan Phillipe, sem fór meðal annars með hlutverk í kvikmyndinni Flags of Our Fathers, segist þreyttur á umfjöllum fjölmiðla um sambandsslit hans og leikkonunnar Abbie Cornish.

„Ég er með nýja reglu: ekki fara á stefnumót með stúlku sem er með talsmann í vinnu fyrir sig. Af hverju þarf að tilkynna sambandsslit? Ég hef aldrei skilið það og mér finnst það óþarfi." Phillipe og Cornish hættu saman í lok síðasta árs og finnst Phillipe hann hafa fengið slæma útreið í fjölmiðlum í kjölfar sambandsslitanna.

„Pressan hefur stanslaust sett út á mig eftir skilnað minn við Reese Witherspoon. Mér finnst ég ekki eiga það skilið. Stundum ganga sambönd bara ekki upp." Hann segist þó eiga gott vinasamband við Witherspoon barna sinna vegna og telur það mikilvægt. „Börn vilja að foreldrar sínir séu hamingjusamir, þess vegna reynum við að halda góðu sambandi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.