Viðskipti innlent

KB banki hækkar vexti

KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með 11. desember. Vextir óverðtryggðra útlána hækka um 0,75 til 1,00 prósentustig. Þannig hækka kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa úr 9,65 í 10,65 prósent. Vextir óverðtryggðra innlána hækka um allt að 0,80 prósentustig. Vaxtabreytingin er gerð í kjölfar tilkynningar Seðlabankans um hækkun stýrivaxta um 1,00 prósentustig. Bankinn breytir ekki vöxtum verðtryggðra inn- og útlána





Fleiri fréttir

Sjá meira


×