Menning

Brúðgumi í basli

Ísraelskur fráskilinn maður lenti heldur betur í því þegar hann gifti sig á ný um helgina. Fyrrverandi eiginkona hans sætti sig ekki við að maðurinn hafði ekki greitt henni lögboðna framfærslu. Hann hafði reynt að fara huldu höfði og tekist það í nær átta ár, þegar hún loks hafði upp á honum og varð sér úti um boðskort í brúðkaupsveislu hans. Konan fékk lögregluna í lið með sér, sem réðist inn í veisluna, og tók allar gjafirnar og fjárframlögin sem gestirnir ætluðu brúðhjónunum. Brúðguminn var ekki handtekinn, en brúðurinn nýja var óhuggandi og steinleið yfir hana í kjölfar alls þessa.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.