Hannar nærföt fyrir konur á blæðingum Sæunn Gísladóttir skrifar 4. apríl 2016 11:15 Sara hyggst framleiða Revol Girl línuna eftir útskrift úr fatahönnunarnámi í vor. Mynd/Katrín Braga
Þetta var þvílíkt ferli að komast að því hvernig ég gæti gert þetta, ég hef verið að prófa þetta á mér sjálfri síðustu átta mánuði," segir Sara Guðný Jónsdóttir, fatahönnunarnemi við Kwantlen Polytechnic University í Vancouver í Kanada. Sara hefur hannað nýja línu af nærfötum, Revol Girl, sem konur geta verið í á blæðingum. Engin þörf er fyrir notkun á túrtappa eða álfabikar þegar konur nota nærbuxurnar nema þegar um miklar blæðingar er að ræða. Brjóstahaldararnir eru einnig hannaðir með það í huga að brjóst kvenna stækka almennt vikuna fyrir blæðingarnar. „Í rauninni er varan túrnærbuxur sem blettir festast ekki í og auðvelt er að þvo. Þrjú efni vinna saman við að búa þetta til, eitt þeirra veldur því að það kemur ekki lykt meðan maður er í þessu, annað dregur í sig vökvann og það þriðja er ekki vatnshelt. Hugmyndin er að eiga kannski sjö nærbuxur til skiptanna á blæðingum," segir Sara. „Ég er búin að vera að vinna í þessu síðan síðasta sumar. Þetta er lokaverkefnið mitt í skólanum. Ég er búin að vera að vinna með sundföt og undirföt síðustu tvö árin og vissi að ég myndi vilja gera eitthvað tengt því í lokaverkefninu mínu. Ég vildi gera femínísk undirföt og hugsaði hvað ég gæti gert sem væri öðruvísi, og byrjaði að hugsa um hvað konur þyrftu og hvað ég gæti gefið þeim," segir Sara. „Þetta túrnærbuxna trend er bara rétt að byrja en er að vaxa í vinsældum núna. Það eru bara nokkur fyrirtæki að framleiða þetta, og mér fannst öll hönnunin mjög einföld, bara venjulegar nærbuxur sem drógu í sig blóðið. Ég vildi gefa konum eitthvað aðeins meira og aðeins meira spennandi. Þegar maður er á túr vill maður vera í þægilegum nærbuxum og líða vel," segir Sara. Revol Girl-línan verður frumsýnd á tískusýningu hönnunarnema Kwantlen Polytechnic University þann 6. apríl næstkomandi, og hyggst Sara byrja að framleiða hana sjálf í júní. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. apríl.
Mest lesið Ingunn Lára gengin út með Celebi Lífið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Það er töff að vera sauðfjárbóndi Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Elt á röndum með drónum Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Lífið Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Lífið Fleiri fréttir Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Sjá meira